Hugur - 01.01.2013, Blaðsíða 87
Hver eru vi!horf grunnskólakennara til l#!ræ!is í skólastarfi?
í ljós athyglisverð marktæk neikvæð fylgni. Því meira sem þátttakendur forðast
að ræða umdeild mál, stjórnmál eða trúmál, því ólíklegra er að þeir telji að nem-
endur eigi hugmyndir að viðfangsefnum í kennslustundum, taki þátt í skipulagi
kennslustunda, taki virkan þátt í umræðum, tjái sig opinskátt, virði skoðanir hvers
annars eða séu ófeimnir við að ræða umdeild mál í kennslustundum.
Umræ!a
Í hugum þátttakenda virðist lýðræðishugtakið vera frekar skilið í ljósi hugsjóna
lýðræðisins en framkvæmdar þess eða útfærslu. Hin lýðræðislega manneskja sem
Dewey skilgreindi virðist ekki vera bak við mörg kennaraborð því þeir eiginleikar
sem þátttakendur tengdu síst við lýðræði – samræða, hlustun, rökræða og um-
burðarlyndi – eru lykilþættir í hugmyndum Deweys.53 Þrátt fyrir skipbrot hug-
myndarinnar um hina lýðræðislegu manneskju má með réttu halda því fram að
skilningur þátttakenda sé í anda efnislegra kenninga um lýðræði sem Malla um
siðferðilegt innihald fremur en stjórnskipunarlegt form.54 Þetta bendir, þrátt fyrir
allt, til þess að kennararnir endurspegli ekki þann hversdagslega, þunna skilning
á lýðræði sem Þorsteinn Gylfason taldi viðtekinn hér á landi, því að í huga þeirra
er lýðræði einkum tengt hugsjónum um mannréttindi og jafnrétti.55 Samkvæmt
þessu virðist lýðræðið þó vera fyrirfram gefið gildi, þ.e. dygð sem þarfnast við-
halds og næringar. Hugtök sem snerta framlag einstaklingsins, líkt og samræða,
rökræða, hlustun og umburðarlyndi, fá litla athygli og því má spyrja hvort skiln-
ingur þátttakenda sé að því leyti fremur í anda þunns lýðræðis.56 Hugsjónirnar eru
til staðar en leiðirnar eru samfélagslegar eða stjórnskipulegar, ekki einstaklings-
bundnar líkt og nauðsynlegt er ef lýðræðishugsjónin á að koma frá þegnunum
með virkum hætti eins og Dewey taldi vera grundvallaratriði í lýðræðissamfélagi.
Lýðræðinu virðist þannig ætlað að vera fremur í höndum stjórnmálamanna en á
valdi þegnanna.
Þessar tvíbentu vísbendingar um „þykka“ eða „þunna“ lýðræðishugmynd gefa í
skyn þriðja möguleikann. Hugsjónirnar sem koma skýrast fram eru siðferðilegar
í eðli sínu og samfélagsbundnar. En til þess að lýðræðishugmyndin geti talist
„þykk“ þurfa leiðirnar að vera einstaklingsbundnari. Því leyfum við okkur þann
túlkunarkost að kalla ríkjandi lýðræðishugmynd þátttakenda í rannsókninni hálf-
þykka (sjá töflu ).
Nemendur virðast hafa mest áhrif á umgjörð skólastarfs svo sem bekkjarreglur
og sætaskipan en síður á innihald en slíkt væri æskilegt ef útfæra ætti hugmynd
Deweys um tækifæri nemenda til að hafa áhrif á eigin aðstæður. Þótt nemendur
hafi frelsi til að ákvarða afmarkaða þætti skólastarfs verður ekki framhjá því horft
að hið raunverulega inntak námsins, sem ætti að tengjast mest þeirri merkingu
sem nemendur leggja sjálfir í líf sitt og nám, er eiginlega að öllu leyti í höndum
Dewey .
Ólafur Páll Jónsson : .
Þorsteinn Gylfason .
Carr .
Hugur 2013-4.indd 87 23/01/2014 12:57:27