Prestafélagsritið - 01.01.1930, Side 19
Prestafélagsritið.
BJARTSÝNI Á SIGUR HINS GÓÐA.
Synoduserindi flutt í Dómkirkjunni 19. júní 1930.
Eftir prófessor Sigurð P. Sívertsen.
Ég vil þegar í byrjun taka það frarn, að þótt ég nefni
erindi mitt »bjartsýni á sigur hins góða«, er ætlun mín ekki
sú, að fara að gefa lýsingu á hinum gagnstæðu skoðunum
og stefnum, sem vér nefnum aðra bjartsýni, en hina svartsýni
eða bölsýni, né að fara út í athugun eða rannsókn á því,
hvor hugarstefnan sé almennari vor á meðal.
Hér er gert ráð fyrir því sem staðreynd, að til séu menn,
sem líta dökt á lífið, festa hugarin öðru fremur við hið illa
og óheillavænlega, sem þeir hafa séð og kynst, finna sárt til
þess, hve lífið sé dapurt og vald hins illa mikið, og vænta
sér því lítils góðs af lífinu, bæði sjálfum sér og öðrum til
handa. — Hins vegar er einnig gert ráð fyrir því sem stað-
reynd, að íil séu líka menn, sem fesfa meir hugann við björtu
hlið lífsins en við erfiðleika þess, og sem líta meir á það,
sem getur orðið, á möguleika lífsins, en á lífið eins og það
er, og vænta sér góðs af lífinu, þrátt fyrir alt böl og vonbrigði.
Vér munum ö!l vera sammála um, að þessir tveir flokkar
manna séu til, bæði vor á meðal og á meðal annara þjóða,
þótt oss ef til vi!I komi ekki saman um hitf, hvor flokkurinn
sé fjölmennari eða Iáti meira á sér bera.
Fáir munu þeir heldur vera, sem ekki verða að játa, að
báðir þessir flokkar hafi mikið til síns máls, hafi margt og
mikið frarn að færa sínum skoðunum til stuðnings. Því að