Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 20
Prestafélagsritiö. S. P. S.: Bjartsýni á sigur hins góða.
13
engum getur dulist, að í mannlííinu skiftisi á ilt og gott, þar
er bæði synd og sorg, — og gleði og gæfa og góðleikur.
Fyrir þeirri staðreynd geta menn ekki lokað augum sínum.
Nei, það sem fyrir mér vakir, er að athuga aðeins eitt við-
horf þessa má!s, og það er gildi bjartsýninnar fyrir mannlífið.
Eg ætla að leiíast við að svara spurningunni um, hvort það
skifti nokkru máli, hvort menn líti meir á björtu hlið lífsins
en hina svörtu, hvort trúin á sigur hins góða valdi nokkrum
breytingum til batnaðar.
Uerður lífið nokkuð betra eða göfugra, þótt menn l'xti bjart
á það og möguleika þess? Það er spurningin, sem fyrir mér
vakir að leitast við að gera hér grein fyrir.
* *
*
Þegar svara á spurningu minni, verður að fara til reynsl-
unnar og athuga málið í ljósi hennar. Og það sem sú at-
hugun verður að beinast að, er að finna því stað og færa
rök fyrir því, hvað reynslan kennir uin þróun heimsins og
framfarir, hvort það eru bölsýnu mennirnir og brestleitnu, eða
bjartsýnu mennirnir, sem mestu hafa komið til leiðar mann-
kyninu til heilla og blessunar.
Tökum fyrst verklegu framfarirnar og athugum forgöngu-
mennina á því sviði.
k skólaárum mínum eignaðist ég bók, sem mér þótti afar-
mikið koma til. Var hún saga merkilegustu uppfundninga,
sem þá voru þektar, og lýsing á æfiferli þeirra manna, sem
aflað höfðu heiminum nýrrar þekkingar, sem uppgötvað höfðu
áður óþekt öfl og ieynd lífslögmál, og fundið upp margvísleg
þægindi, stór og smá, — og sem hver á sinn hátt og á sín-
um tíma urðu forgöngumenn að því að gera líf manna betra
og þægilegra en áður þektist, hlýrra og fyrirhafnarminna,
menningarmeira og þroskaðra.
Hvað einkendi nú þessa forgöngumenn verklegra fram-
kvæmda? Eða var þeim nokkuð sameiginlegt?
Sé farið að lesa æfisögur þeirra, sést að gáfur þeirra og
lífskjör hafa verið næsta ólík, og aðstæður þeirra með ýmsu