Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 32
Preslafélagsritiö.
Bjartsýni á sigur hins góða.
25
með ýmsu móti, og þótt allir menn aðhyllist ekld sömu trúar-
venjur. — Alt ber hér að sama brunni: Trúin á hið góða
skapar það, eflir það og eykur, og traustið til annara magnar
þá til allra góðra framkvæmda, eykur þeim mátt og styður
að framgangi hvers góðs málefnis, sem fyrir er barist. Hvergi
ríður því meir á því, að hið neikvæða hverfi, en á trúmála-
sviðinu, og að sem mest fjölgi samstiltu sálunum, sem vita
sig kallaða til að reka erindi Krists og sem gera það með
einlægri trú á sigur hins góða. Þann dag, sem þeir menn
eru orðnir nógu margir, sem einnig sjá hið góða hjá þeim,
er hafa frábreyttar skoðanir, sem viðurkenna trúareinlægni og
góðleika hvar sem það birtist, og hafa örugga trú á sigri
hins góða, — þann dag fer alt vonleysi og festuleysi einnig
á þessu sviði að hverfa, en hver mun magna annan til göf-
ugrar baráttu fyrir áhugamálum sínum.
* *
*
í bók kristniboðans Stanley Jones: >Christ at the Round
Table«, standa svofeld ummæli, höfð eftir nútímaheimspekingi:
>Eg læt mér einkar umhugað um það, hvað heimurinn getur
orðið, en ekki um hitt, hvað hann nú er«.
Mér fanst mikið koma til þessara orða, þegar ég las bók
þessa. Mér fundust þau eiga skilið að verða einkunnarorð
allra þeirra, sem þrátt fyrir böl og synd og erfiðleika, sem
blasa við augum allra manna, eru þó bjartsýnir á möguleika
mannlífsins og trúaðir á sigur hins góða.
Reynslan mun sýna, hér hjá oss ekki síður en annarstaðar,
að mikla trúin er máttug til góðra verka, og að þeir menn,
sem bjartsýnastir eru á hið góða, munu mest að því stuðla,
að í umheimi þeirra verði sífelt bjartara og betra.
Með þá von í huga, skulum vér gera ósk skáldsins að
vorri, og segja með samstiltum huga:
„Ljómaðu í hjörtunum, ljóssins merki,
hjá landslýð, hjá valdsmanni og klerki!" (E. B.)