Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 33
Prestafélagsritiö.
TRÚ FRAMTÍÐARINNAR.
Eftir Sir Fvancis Younghusband.
[Höfunduriun er herforingi og landfræöingur. Hann hefir ferðast mjög
mikið um Asíu og Suður-Afríku og ritað vel um ferðir sfnar. Hin síðari
árin hefir hann samið all-margar bækur um vísindaleg efni, meðal þeirra
er „Life in the stars", sem kom út 1927.]
Trú framtíðarinnar mun verða einföld í insta eðli sínu eins
og trú nútíðarinnar og liðna tímans. Hún mun verða trú á
hið góða, trú á það, að heiminum sé stjórnað að góðu marki.
Ekki eiga aliir nú þá trú. Ekki hafa heldur allir átt hana á
liðnum tímum. Og ekki munu allir eiga hana á ókomnum
tímum. Þeir menn hafa altaf verið til og munu jafnan verða
tii, sem efa það, að tilveran sé góð, efa það, að heiminum
sé í raun og sannleika stjórnað að góðu marki. Margir munu
í framtíðinni, eins og bæði nú og fyr, einbeiía athygli sinni
að þjáningunum og bölinu í heiminum, sem Iiggja í augum
uppi. Þeir munu færa rök gegn þeirri trú, að honum sé
stjórnað að góðu marki, það sé svo mikið til af kvö! og
vonzku í honum; frumaflið hljóti að láta sig engu skifta ilt
né gott. Aðrir einbeita athyglinni að náttúruheiminum og bygg-
ingu hans og sýna fram á það með líkum hætti, að þar eigi
hvorugt minsta hlut að gott eða ilt. Þeir munu komast að
þeirri niðurstöðu, að alheimurinn hafi sinn gang eins og afar-
mikil vél, sem skeyti alls ekkert um ilt né gott, það komi
ýmist upp, en honum standi alveg á sama hvort heldur sé,
og að síðustu haldi hann áfram hringrás sinni án hvorstveggja,
ills og góðs, og hafi jafnvel hvorki hugsun né löngun til að