Prestafélagsritið - 01.01.1930, Síða 37
30
Francis Vounghusband:
Prestafélagsritið.
um í skógana í hitabeltinu: Apategundir, grimm tígrisdýr,
hræddir hirtir, tröllauknir fílar, fagrar antilópur, skrautlegir
fuglar og fiðrildi og aragrúi af skordýrategundum. Sama er
um fiskana og fjölda af dýrum, sem lifir f moldinni. Og öll
þessi fjölbreytni er í dýraríkinu einu. En auk þess er nær
cendanleg fjölbreytni í jurtaríkinu alt frá risavöxnum skógar-
trjám til fíngerðs Maríulykils og mjúks burkna og allavega
litra og lagaðra blóma.
Þegar ferðamaðurinn reynir að rifja upp fyrir sér lögun og
liti, einkenni, hætti og hreyfingar fugla, skepna og skorkvik-
inda, jurta og trjáa, er hann hefir séð, þá virðist honum fjöl-
breytni lífsins óendanleg. En þótt fjölbreytnin sé ógurleg og
afskaplegur munur á kyneinkennum, þá er lífið alt samt sem
áður eitt stórkostlegt líf. Sameiginlegt líf iífgar alt. Sameigin-
legt lif og sameiginleg ást. Því að það sér ferðamaðurinn,
að þar sem lífið er, þar er ástin. Ástin lætur mennina verða
til — skepnurnar, fuglana, skordýrin og jafnvel jurtirnar. Án
kærleika er ekkert líf til. Ungir menn og konur unnast.
Skepnur, fuglar og skordýr eignast maka. Blóm frjóvgast.
Eitt líf og ein ást streymir fram um alla fjölbreytnina. Eitt
voldugt heildarafl heldur henni allri saman.
Ferðamaðurinn sér það ennfremur, að þetta eina volduga
líf og ást er tengt óvofaböndum við náttúruheiminn. Líkamir
manna, skepna og jurta eru runnir frá efnum jarðarinnar.
Alt andar þefía lofti að sér, Og alt er að lokum háð ljós-
geislum sólarinnar. Án ljóss gæfi hvorki líf né ást verið til.
Vísindamennirnir fá ekki enn leyst úr því, hvernig hið vold-
uga líf hófst á þessari plánetu. Þeir fullyrða alveg, að hún
hafi fallið eins og dropi frá sólinni — og hafi sá dropi upp-
haflega verið eldmistur, en jafnvel ekki þá er.n úr fljótandi
efni. En þá dul æíla vísindamennirnir sér ekki enn að skýra
hift, hversu lífið gat hafist á Iitlum eldhnetti, sem kulnaði
smámsaman út en móðurhnötturinn sfóri hélt áfram að skína
á, glóandi í 93 miljón milna fjarlægð. Sumir geta þess til, að
lífið hafi hafist af einberri tilviljun. Innan um eindaflokkana
óteljandi og eindasöfnin hafi af hendingu myndast slíkt sam-