Prestafélagsritið - 01.01.1930, Side 38
Prestafélagsriiiö.
Trú framtíðarinnar.
31
band, er leiddi til lífs, og þegar líf hafi eitt sinn verið orðið
til, þá hafi sjálfkrafa komist á sá skriður, að öll þau undur
þroskuðust af, er vér sjáum umhverfis oss. Þetta er sú skýr-
ing, sem sumir gefa, en sannfærandi er hún ekki.
Ef til vill er viturlegra að skoða báðar, plánetu og móður
hennar, eins og einn hluta úr víðáttumikilli heild, alheiminum,
en hætta að hugs? um sólina eins og dropann frá henni.
Oss er sagt, að sólin sé aðeins ein af 2 eða 3 miljónum
sijarna, sem allar séu til orðnar úr stórri hverfiþoku, og sú
þoka sé aðeins ein af 2 eða 3 miljónum af slíkum þokum.
Og allar cru þær sameinaðar í þessari heild, sem vér nefn-
um heiminn. Og vísindamenn telja nú þessa heild skipulags-
bundna, þ. e. a. s. allir hlutir hennar eru í sambandi sín
í m.illi.
Um þetta er afarmikils vert, og enn hefir mönnum ekki
skilist alment, hvað það felur í sér í raun og veru. Vér skul-
um reyna að koma til fulls auga á það. Óteljandi eininoar
mynda alheiminn, hvort heldur þær eru plánetur, sólir, sól-
kerfi, eindir (atómur), menn eða félög manna. Hver um sig
af þessum einingum — jafnvel eindin — er harla flókin og
margbrotin lífsheild, þar eru ýmsir hlutar hver öðrum skyldir
og störf og eiginleikar koma þar í ljós. Og hver um sig af
þessum einingum verður að meira eða minna Ieyti fyrir áhrif-
um frá öllum öðrum einingum og alheiminum í heiid sinni.
Og þar sem svo er, þá er hver eining, eins og Whitehead
sefur í skyn, »smá heimur, sem svarar sjálfur til alheimsins,
er alt felur í sér<. Þessvegna hlýíur alheimurinn að vera
lifandi, fyrst sólkerfi vort hefir leitt líf í Ijós. Þar sem nú
sólkerfið er eining í skipulagsbundinni heild, alheiminum —
smáheimur, sem svarar sjálfur til alheimsins, þá leiðir af því, að
alheimurinn hlýtur að minsta kosti að hafa jafnmikið til brunns
að bera í insta eoli sínu og þessi pláneta. Og leiði þessi plá-
neta líf í ljós, þá hlýtur alheimurinn sannarlega að búa yfir Iífi.
Með öðrurn orðum: Úr því að líf birtist hér, þá hlýtur alheim-
urinn að vera lifandi. Lífið hlýtur að hafa komið til þessarar
plánetu alveg úr hjarta alheimsins. Eitthvað það hlýiur að