Prestafélagsritið - 01.01.1930, Síða 58
Presfafélagiritiö.
Kirkjan og þjóðfélagsvandamálin.
51
Aðalmaður þessarar hreyfingar var skáldið og presturinn
Charles Kingsley, en við hlið hans stóðu presturinn D. Mau-
rice, síðar prófessor, og málafærslumaðurinn J. M. Ludlow.
Tildrög hreyfingarinnar má rekja til febrúar-byltingarinnar á
Frakklandi 1848. Hafði hún í för með sér alvarlegar óeirðir
meðal enskra verkamanna. Þá samdi Kingsley ávarp til verka-
mannanna, þar sem hann leggur áherzlu á bætt kjör þeirra,
en eina hugsanlega leiðin til þess að fá því fram komið,
telur hann trúarlega innri siðbót einstaklinganna. Síðan tóku
þeir félagar að gefa út vikublað (Politics for the Nation), en
urðu þó brátt að hætta við útgáfu þess af fjárhagslegum á-
stæðum. Fyrir mikinn dugnað tókst þó Kingsley nokkru síðar
að stofna nýtt blað (The Christian Socialist). Með báðum
þessum blöðum vöktu þremenningarnir geysilega eftirtekt.
Hér var nokkuð nýtt á ferðinni. Þeir kröfðust jafnaðarmensku,
ekki aðeins af hagnýtum og fræðilegum ástæðum, heldur líka
sem beina kröfu kristindómsins. Og nú tóku verkamennirnir
smátt og smátt að fá traust á þeim, og ekki einungis þeir.
Fjöldi mentamanna fer nú að gerast samstarfsmenn þeirra.
Kingsley reyndi stöðugt að sannfæra menn um það, að ekk-
ert megnaði að bæta og göfga þjóðfélagsástandið, annað en
kristindómurinn. Hann einn gæti jafnað flokkadrætti og út-
rýmt eigingirni. Og hann gerði sér far um, að koma verka-
mönnunum í skilning um, að kristindómurinn og Biblían væru
öðruvísi, en virðast mætti oft af ræðum prestanna. Hvort-
tveggja hefði að geyma meginreglur jafnréttis og frelsis, rétt-
lætis og bræðralags. Og hann sýndi verkamönnunum fram á,
að þeir hefðu oft haft rangan skilning á þessu. Eftir að D.
Maurice varð prófessor, hafði hann mikil áhrif á hina upp-
vaxandi guðfræðinga. Ludlow var aftur á móti, vegna atvinnu
sinnar, kunnugastur hinu raunverulega lífi öreiganna, og gaf
ýmsar hagnýtar bendingar og ráð. Það leið heldur ekki lang-
ur tími, unz starf þeirra fór að bera sýnilegan árangur.
Merkir menn af öllum stéttum rétta þeim hjálparhönd, bisk-
upar og aðalsmenn veita þeim fulltingi. Kingsley og félögum
hans var mentun alþýðunnar hið mesía áhugamál og gengust