Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 99
90
Jón Helgason:
Prestafélagsritiö.
við þá skoðun manna, að skilyrðislaus hlýðni við óskeikulan
páfa væri eina tryggingin, sem treystandi væri, gegn ógnum
nýrrar stjórnarbyltingar. Vfirleitt var katólska afturkastinu
mikill stuðningur að hinni nýju stjórnarstefnu, sem upp úr
Napóleons-styrjöldunum tekur að ryðja sér til rúms í flestum
löndum álfunnar. Þjóðhöfðingjarnir og stjórnmálamennirnir
voru allir hlyntir því, að sambandið milli hásætis og altaris
væri sem allra nánast, en það var einmitt takmarkið, sem
•heilaga bandalagið* stefndi að. Sumpart voru menn því
hlyntir af trúarlegum ástæðum (eins og t. d. Alexander I.), en
sumpart einvörðungu af stjórnlegum ástæðum (eins og t. d.
Metternich, hinn áhrifamikli forsætisráðherra Austurríkismanna).
Þeir voru hlyntir Rómakirkju af því að þeir álitu sig eiga,
þar sem hún var, ágæta stoð afturhalds-pólitík sinni. Loks
urðu hugsvifaskáldin páfafylgis-stefnunni mikill stuðningur.
Skáld þessi voru altekin af aðdáun á miðalda-kirkjulífinu með
allri þess óbifanlegu vanagildis-trú, innilegu dulspeki og kyn-
Iegu helgisögnum. Þessi rýnilausa miðalda-dýrkun varð til þess,
að allmörg af hinum þýzku hugsvifa-skáldum tóku beinlínis
katólska trú.
Þar sem nú rómverska kirkjan gerði samband við hið póli-
tíska afturhald í katólsku löndunum og sjálf hallaðist ákveðið
á afturhalds-sveifina í öllum greinum, hlaut svo að fara, að til
fjandskapar leiddi með kirkjunni og frelsis-sinnum á Frakk-
landi, Spáni og Ítalíu. A Frakklandi var í bili loku skotið
fyrir yfirdrotnan afturhaldsins með júlí-byltingunni 1830,
er Karl X. konungur hröklaðist frá völdum fyrir Loðvíki
Filippusi, er var frjálslyndur talinn. En er Napóleon III. hafði
brotist til ríkis komst páfafylgis-stefnan aftur til valda og var
það einkum að þakka Evgeniu drotningu hans. Frá Frakk-
landi barst byltingaaldan til Belgíu og Ítalíu. Belgía var al-
katólskt land. Á Vínarfundinum hafði Belgía verið sameinuð
Hollandi, þar sem mótmælendatrú var ríkjandi. Voru páfa-
fylgismenn í Belgíu mjög mótfallnir þeirri sameiningu og
gerðu samband við frelsissinna þar í landi. Leiddi það til upp-