Prestafélagsritið - 01.01.1930, Blaðsíða 104
Prestafélagaritiö.
Rómverks-katólska kirkjan.
95
hafði birzt meðal pílagrímanna, sem farið höfðu til Tríer til
að veita hinum heilaga kyrtli tilbeiðslu. Um haustið sama ár
eftir að sýningunni var lokið birtist í >Saxnesku föðurlands-
blöðunum* opið bréf til Arnoldi’s biskups, þar sem honum
var með hörðum orðum borið á brýn, að hann hefði tælt
Iýðinn til hjáguðadýrkunar með sýningu kyrtilsins, og jafn-
framt var þar skorað á hina Iægri klerka að snúa baki
við hinni rómversk-katólsku kirkju. Höfundur bréfsins var
katólskur prestur að nafni Johannes Ronge. Honum hafði
nokkru áður verið vikið frá embætti tyrir grein, sem hann
hafði ritað i sömu blöðum, og hafði nú að atvinnu barna-
kenslu hjá námamönnum af mótmælendatrú. Vakti bréf þetta
gífurlega eftirtekt og höfundur þess, sem áður var alveg
óþekíur maður, varð á svipstundu frægur um land alt. Hreyf-
ing sú, sem bréf þetta vakti, leiddi í Ijós, að mikil óánægja
var þrátt fyrir alt ríkjandi innan rómversk-katólsku kirkjunnar.
Og fjöldi manna vildi þegar slíta öllu sambandi við hana og
mynda sérstaka þýsk-katólska kirkju. Hvað það var, sem menn
einkum voru óánægðir með, kom þó ekki eins greinilega í ljós.
Að það var ekki eldur trúarinnar, sem logaði inni fyrir hjá
Ronge, gat ekki dulist. Hann var sem guðfræðingur nánast
skynsemistrúarmaður, enda fjarlægðist hreyfing sú, er hann
hafði vakið, meira og meira jákvæðan kristindóm. — Nokkru
áður en Ronge reit bréf sitt hafði annar rómv.kat. prestur,
Jchannes Czersky, aðstoðarprestur í Schneidemiihl (í Posen),
risið á móti hinni katólsku kirkju og skorað á menn að snúa
við henni bakinu vegna þess, að kenning hennar færi í mikil-
vægum atriðum í bága við kenningu ]esú og postulanna.
Hann gerðist 1844 prestur katólskra fráhverfinga, er nefndu
sig »kristilegan katólskan söfnuð*, en höfnuðu ýmsum megin-
henningum katólskrar trúar, eins og kenningunni um hreins-
unareldinn, um efnisbreytinguna í kvöldmáltíðinni, um ókvæni
presta, um páfann sem staðgöngumann Krists á jörðu o. fl.; en
héldu aftur á móti kenningunni um sakramentin sjö. Þeir Ronge
°9 Czersky reyndu að binda með sér bandalag, en það banda-
iag stoðaði ekki, því að þeir voru engan veginn sammála í