Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 143
134
Á. G.: Framtíð þjóðkirkjunnar.
Prestafélagsritið.
hafa á hendi alla kristindómsfræðslu skólabarnanna í heima-
söfnuoi mínum. Hún fór aldrei í bága við önnur prestsverk
mín, því að alt af var auðvelt að hliðra til eftir þörfum. Og
hún var það, sem mér var ljúfast af öllu að vinna. Þeir
prestar, sem hafa kent kristin fræði í skólum samhliða öðru
prestsstarfi, hygg ég, að muni allir hafa sömu reynslu í þess-
um efnum og styðja mál mitt.
Prestastéttin íslenzka er dreifð um landið, og skoðanir
hennar falla ekki heldur æfinlega saman. En í því ættu þó
allir prestar að geta verið eitt, og allir, sem kristindómi unna,
að efla heill þjóðkirkjunnar og berjast fyrir því, að hún fái
unnið starf sitt með fullum þrótti. Þeir geta nú þegar bund-
ist samtökum um það, að styðja að því með áhuga og festu:
að prestar komi sem fyrst í laus prestaköll, og kirkjunni
bætist þannig miklir og góðir kraftar;
að prestakallaskipun landsins komist í það horf, sem söfn-
uðurnir þarfnast, að beztu manna yfirsýn;
að aðstaða presta verði svo, að þeir geti helgað Iífsstarfi
sínu alla krafta sína.
Verði hið gagnstæða ofan á, þá er framtíð þjóðkirkjunnar
í veði. En vér fáum hrundið þessu í framkvæmd, ef vér
stöndum fast saman, prestar og söfnuðir.
Guð gefi oss til þess nógan kærleika og bróðurhug, vit og
djörfung og stillingu.
Guð varðveiti þjóðkirkju íslands.