Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 144
Prestafélagsritið.
TRÚARBRAGÐAFRÆÐSLA í SKÓLUM.
Eftir séra Sigurð Einarsson.
Eins og lesendum Prestafélagsritsins er kunnugt, ritaði ég
í það grein s. 1. ár, sem ég nefndi »Barnatrú«. í þeirri grein
leitaðist ég við að skýra hugtakið barnatrú sálfræðilega, og
þó af miklu minni efnum, en þörf hefði verið. En þó var
uppruni trúarhugmynda með barninu rakinn í stórum dráttum,
getið þeirra félagsáhrifa og umhverfis, sem þar eru einkum
að verki, þróunarferill trúarlífsins nokkuð rakinn í samræmi
við annan þroska, andlegan og líkamlegan, og loks getið
nokkurra merkilegra fyrirbrigða í trúarlífi barna, sem að vísu
eru ekki svo algeng, að þau megi telja til megineinkenna, en
koma þó jafnan í ljós með stærri eða minni hópum.
Nú á það ekki við að fara að rifja upp efni þessarar
greinar, framar en hér hefir verið gert. En ég vil aðeins
taka það fram, að í eftirfarandi línum verður gengið út frá
því, að svo sé varið trúarlífi barna, sem þar er greint frá.
Ðarnið, eins og því er þar lýst, er þá efniviður sá, sem skól-
inn fær til að fjalla um. Viðfangsefni mitt hér verður því það,
að gera tilraun til þess að kanna:
1. Uppeldisfræðilegt takmark skóla, sem tekur að sér trúar-
bragðafræðslu.
2. Hvernig skólum með ríkjandi fyrirkomulagi virðist takast
að leysa það af hendi.
3. Hverja möguleika ætla mætti að skólinn hefði til þess
að ná þessu takmarki, með breyttu fyrirkomulagi og
breyttum tækjum.