Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 159
150
Sigurður Einarsson:
Prestafélagsritið.
anna, þar sem kærleiks og hjálparfýsn þeirra nýtur sín til
fulls. Því það er á þessum eigindum, sem félagsbamingja og
samverugleði mannanna byggist, og gerir samlíf þeirra fagurt
og virðulegt og mönnum samboðið.
Eins og vita má, er hér ekki tækifæri til þess að ræða
nánar fyrirkomulag slíks skóla. Aðeins vil ég benda á, að
með þessu er skólinn orðinn gróðrarreitur persónulegs þroska
og mannræktar. Og það þarf ekki að taka það fram, að
afstaða kristindómsfræðslunr.ar í slíkum skóla er alt önnur en
í skóla með ríkjandi fyrirkomulagi. Markmið hennar og höfuð-
tnarkmið skólans fellur saman. Hún er orðin það, sem
kristindómsfræðsla á að vera, þroskanám, en ekki fróðleiks-
nám, og er það í samræmi við alla starfsháttu skólans og öll
önnur viðfangsefni, en ekki einangruð eins og nú.
Ég geng þess ekki dulinn, að langt muni þess að bíða, að
slík gerbreyting innan frá fari fram í íslenzkum skólum, og
sú er hér greinir frá. Bæði er það, að ýmsum mun standa
af henni talsverður stuggur, og þá einkum þeim, er ekki
þekkja nægilega vel til, og þá ekki síður hitt, að það mundi
krefja gagngerðrar breytingar á mentun kennara. Hitt er og
víst, að ýmislegt mun verða reynt um kristindómsfræðslu í
skólum, áður en svo sé komið. Mér hefir ekki komið nema
eitt til hugar, sem koma mætti að gagni. Það er að leysa að
minsta kosti þessa einu námsgrein, kristindómsfræðsluna, úr
viðjum hins eldra skólafyrirkomulags, og inna hana af hendi
svipað því, sem tíðkast um námsgreinar í góðum nýskóla, þ.
e. skipa hinu uppeldisfræðilega markmiði upp fyrir fræðslu-
markmiðið.
Eg veit að til eru menn, sem vænta sér einhvers af nýju
kveri, sem mælt er að von sé á. Ekki er fyrir það að synja,
að góð og tímabær bók í kristnum fræðum, kunni einhverju
góðu til leiðar að koma. Og væntanlega léttir hún nokkru
erfiði af kennurum og prestum. En hversu gott, sem kverið
yrði, leysir það aldrei uppeldisfræðilegan vanda þessa máls.
Kver getur aldrei orðið annað en tæki til þess að veita
»kvantitativa< fræðslu. Góða kverið hefir það meðal annars