Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 192
182
Þorsteinn Briem:
Prestafélagsritið.
Eftir að séra Eiríkur hætti opinberum störfum, vann hann
enn að því að auðga anda sinn með lestri og rannsóknum.
Fylgdist hann þá m. a. ágætlega með ýmsum hinum merk-
ustu nýjungum og uppgötvunum síðustu ára, og hélt með því
anda sínum ungum. Og af því að hann reyndi stöðugt að
fylgjast með tímanum í því, sem honum þótti merkast, þá
hélt hann og til æfiloka óskertum skilningi sínum á æskunni,
óskum hennar, hugsjónum og þörfum.
Oft hendir það gamla menn, að dæma nýja tímann óvægi-
lega, og gleyma því, að þeir hafi sjálfir verið ungir. Ekkert
var fjarlægara séra Eiríki en það. Hann varð aldrei »laudator
temporis acti«, heldur átti hann óskerta æskutrú sína á þjóð-
inni og framfaramöguleikum landsins. Hann treysti því, að
viðfangsefni þau, sem enn væru óleyst og sýndust óleysandi,
mundu leyst verða áður en menn óraði fyrir. Og þessi bjart-
sýni hans studdist áreiðanlega við hið bjargfasla guðstraust
hans.
Honum var erfitt um að ræða um hin helgustu trúarmál,
nema þar sem hann fann skilning og samhug. En þó fann
ég jafnan, er við áttum rækilegt tal saman, að honum var
ljúfast að tala um þau mál. Síðast er við áttum samræður,
þá talaði hann um þá menn, er hefðu trúarþörf og trúar-
löngun, en »gætu ekki trúað*.
Og þá tók hann fram Nýja-testamentið á frummálinu og
fór með þessi orð eins og honum þótti þau verða nákvæm-
ust þýdd á vora tungu: »Ef sá er nokkur, sem vill gjöra
vilja hans, hann mun fá að vita, um kenninguna, hvort hún
er frá Guði, eða ég tala af sjálfum mér«. ]óh. 7,17.
Hann lagði áherslu á, að þarna ættu þessir menn fyrirheit,
ef þeir fylgdu bendingu guðspjalisins. Vegurinn til að eignast
trú væri því ekki sá, að brjóta fyrst heilann um kenni-
setningar, heldur að reyna að eignast hugarfar ]esú. Því að
hver, sem vill af alvöru ástunda að eignast það hugarfar,
sem var í ]esú Kristi, og laga líferni sitt eftir honum, »hann
á fyrirheitið", sagði hann. »Hann mun fá að vita um kenn-
inguna, hvort hún er frá Guði komin*. Þetta kvað hann