Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 237
Prestafélagsritiö.
Evangelisk helgisiðabók.
225
kristna trú vora með orðum heilagrar ritningar*. Játningar
þessar eru mjög fagrar. Ein þeirra hljóðar svo:
»Guð er andi, og þeir sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja
hann í anda og sannleika. Frá honum og fyrir hann og til
hans eru allir hlutir. Hann er faðir alls, sem hvert faðerni
fær nafn af á himni og jörðu.
Svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn,
til þess að hver, sem á hann trúir, glatist ekki, heldur hafi
eilíft líf. í honum býr öll fylling guðdómsins líkamlega. Guð
hefir lagt alla hluti undir fætur honum og gert hann að
höfði safnaðarins.
Og enginn getur kallað Jesú drottin nema af heilögum
anda. Þeir sem leiðast af Guðs anda eru Guðs börn. En ef
vér erum börn, þá erum vér líka erfingjar, og það erfingjar
Guðs en samarfar Krists. Því að vér erum þess fullvissir, að
hvorki dauði né líf, né hið yfirstandandi, né hið ókomna,
geti gert oss viðskila við kærleika Guðs, sem er í Kristi
Jesú, Drotni vorum*.
Þá er prentuð upp úr skírnarkveri Lúthers Postullega
trúarjátningin, eins og hann hefir stytt hana:
»Vér trúum á Guð, föður almáttugan, skapara himins og
jarðar.
Vér trúum á Jesúm Krist, hans einkason, fæddan og dá-
inn fyrir oss.
Vér trúum á heilagan anda, heilaga, kristilega kirkju, sam-
fjelag heilagra, fyrirgefning syndanna, upprisu holdsins, og
eftir dauðann eilíft líf«.
Gott er að eiga kost á að hafa bók þessa að einhverju
leyti til hliðsjónar við endurskoðun helgisiðabókar vorrar.
Á. G.
15