Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 263
Prestafélagsritið.
Prestafélagið.
251
skyni aö koma á sambandi og samstarfi milli safnaðanna og vekja frúar-
áhuga þeirra fór „Lindin" af staS“.
Vestfirzku prestarnir eiga þakkir skilið fyrir áhuga sinn, og er það
ósk mín, að riti þeirra farnist sem bezt og það lifi sem lengsf. Það mun
sanni næst, að ekki sé of mikið ritað og gefið úí um trúarleg og kirkju-
leg efni, og reyndin mun verða sú, að því fleiri sem fást tii að skrifa
um þau mál, því fleiri munu þeir verða, sem fást til að lesa um þau.
Oskandi vaeri, að sem mest samvinna gæti orðið milli prestafélags-
deildanna og aðalfélagsins. Að því stefna á meðal annars spurningar þær,
sem sendar voru fil prestanna.
5. Launamál presta.
Að þeim hefir, eins og undanförnu, verið unnið í samráði viö full-
trúaráð sambands starfsmanna ríkisins af erindreka Prestafélagsins þar.
Var aðallega tvent, sem lögð var áherzla á að þessu sinni: Annars vegar
að dýrtíðaruppbót yrði að minsta kosti ekki lækkuð úr því sem var, —
en hins vegar að milliþinganefnd yrði sett í launamálin. Eins og menn
vila, var beiðninni um dýrtíðaruppbótina sint á Alþingi, á þann hátt, að
hún hélzt óbreytf, en síðara atriðinu, um milliþinganefndina, hefir ekki
verið sint, þrátt fyrir ítrekuð tilmæli til þings og stjórnar. Var æflun
sambands starfsmanna ríkisins að eiga einn fuiltrúa í slíkri nefnd, ef hún
fengist skipuð, til þess að reyna að koma að réttmætum upplýsingum og
hafa áhrif á undirbúning launamálanna. Slíkri milliþinganefnd var ætlað
að taka laun allra starfsmanna ríkisins til athugunar, og ætti því að vera
samvinna milli hennar og kirkjumálanefndarinnar um launamálin.
6. Aðalfundur 1930.
Aðalfundur þessa árs var haldinn í Reykjavík í sambandi við presta-
stefnuna föstudaginn 20. júní. Var fundurinn óvenjulega vel sóttur og
komu á hann alls 40—50 félagsmenn. Hafði dagskrá fundarins verið
auglýst í vikublöðunum „Tímanum" og „ísafold". — Á fundinum var
skýrt frá gerðum félagsins á liðnu félagsári í samræmi við það, sem hér
á undan hefir verið sagt frá. Einnig gat formaður þess, að félagsstjórnin
hefði farið þess á leit við séra Halldór á Reynivöllum að ferðast um til
þess að efla og vekja áhuga fyrir kirkjusöng, og hann haft góð orð um
að gera það síðara hluta sumarsins. — Féhirðir Iagði fram reikninga
félagsins endurskoðaða, og voru þeir samþyktir og honum vottað þakk-
læti fundarins fyrir hans ágæfa starf í þágu félagsins. — Biskup flutti
Prestafélaginu kveðju frá Maroni stifísprófasti í Osló, formanni Prestafélags
Norðmanna, fyrir hönd þess félags, og þau skilaboð, að félag þeirra
haldi aðalfund sinn í Niðarósi 2.-4. sept. þ. á. og myndi taka því með