Prestafélagsritið - 01.01.1930, Page 267
Prestafélagsritiö.
Islenzkar bækur.
255
sem stríddu þar á móti, ættu engan réti á sér. Þær yrðu að falla. Kristin-
dóminn mætti aidrei skilja frá Kristi. — Slíkt starf er til eflingar kristn-
inni, en ekki hið gagnstæða. Skilningur séra Haralds á friðþæging-
unni kemur einkum fram í þriðju ræðunni: „Quð sætti oss við sig fyrir
Krist“, þ. e. a. s. kærleikur Quðs, sem birtist fulikominn í Kristi, knýr
alla, sem gefast honum á vaid, til þess að elska hann aftur á móti og
hverfa heim, eins og týndi sonurinn frá drafi svínanna; og það verður
sá kærleikur, sem að lokum þrýstir mannkyninu öllu í föðurfaðminn.
Líf 3esú og dauði var fórn hans. En hann á ekki að standa þar aleinn
uppi. Vér eigum einnig að þessu leyti að reyna að feta í fótspor hans
og taka þátt í hinu mikla friðþægingarverki fyrir mannkynsheildina. Vér
eigum að hafa að leiðarljósi þessi orð Krists: „Vilji einhver fylgja mér,
þá afneiti hann sjálfum sér, og taki upp sinn kross og fylgi mér. Því að
hver sem vill bjarga lífi sínu, mun týna því; en hver, sem týnir lífi sínu
mín vegna og fagnaðarerindisins, mun bjarga því“.
Hér er ekki rúm til þess að segja nánar frá efni bókarinnar, en öll
er hún rituð í þessum anda. Þannig er t. d. afbragðs vel fram sett já-
kvæð skoðun í erindinu, sem flutt var á undan prestastefnunni 1927 og
nefnt er: „Trúin á Jesúm Krist, Guðs son, í Nýja-teslamentinu“. Bókin
ælti að fá hinar beztu viðtökur. Hún á fyrst og fremst mikið og gott er-
indi til manna, og svo mætti þá einnig búast við því, að fleiri fyrirlestrar
og ræður séra Haralds kynnu síðar að birlast fyrir almennings sjónum.
Píslarsagan, ásamt stuttum skýringum og sjö föstuhugleið-
ingum eftir Friðrik Hallgrímsson.
Þessi bók mun aðallega ætluð til húslestra á föstunni, og er hún til
þess vel fallin. Píslarsögunni er skift í 24 kafla, og eru með hverjum
þeirra nefndir þeir Passíusálmar, sem við eiga og lesnir skyldu eða
sungnir á undan og eftir. Að vísu vantar mikið á það, að kafli komi á
hvern virkan dag í níu vikna föstunni, en suma daga mætti þá einnig
hafa Passíusálmana eina um hönd. Skifting píslarsögunnar er betri en
áður og mál á henni, því að farið er eftir nýju biblíuþýðingunni. Skýr-
ingar fylgja, þar sem þeirra er einkum þörf. Þær eru ljósar og gagnorðar.
Hugvekjurnar eru að efninu til föstuprédikanir, sem séra Friðrik
hefir flutt í Dómkirkjunni. Þær eru ekki langar, en fallegar. Engin áherzla
er á það lögð að drepa á margar hugsanir, heldur leitast við að láta
fáeinar meginhugsanir, sem píslarsagan vekur, ná sem bezt til Iesand-
anna, og það gert mjög blátt áfram. Þeim, sem hafa heyrt séra Friðrik
halda ræður, mun mörgum finnast við lesturinn, eins og hann sé að tala
við þá. — Þess er óskandi, að margir eignist bókina, og hún styðji að
húslestrum um fösluna. Mjög fagrar myndir auka einnig gildi hennar, og
er útgáfan hin vandaðasta í alla staði. Á. G.