Prestafélagsritið - 01.01.1930, Síða 268
256
íslenzkar bækur.
PresíaféltgsritiO.
„Kristin fræði. Dók handa fermingarbörnum". Eftir Friðrik
Hallgrímsson. Reyltjavík 1930. — 163 bls.
Þá er Ioks nýja „kverið" ltomið, sem margir hafa verið að þrá síð-
ustu árin. Má öllum vera Ijóst, að miltill vandi er að semja slíka bók
og ekki öðrum fært en þeim, sem greina kunna á milii kjarna kristin-
dómsins og umbúða, og æfðir eru í því að ná til barna meö fræðslu
sinni. Það þarf því áræði til þess að leggja út í samningu barnalærdóms-
bókar í kristnum fræðum, og það hefir höfundi verið fyllilega Ijóst, eins
og sjá má af formála bókarinnar, þar sem hann kemst svo að orði:
„Um 32 ára slteið hefi ég fengisl við að veita börnum og unglingum til-
sögn í kristnum fræðum, og hefir það verið mér hugljúft starf. Lengi
hefir mig langað til að semja bók til leiðbeiningar við krislindómsfræðslu
ungiinga; en fram að þessu hefir mig brostið áræði til þess, vegna þess
að mér hefir altaf verið Ijóst hvílíkt vandaverk það er; og þegar ég hefi
nú loks ráðist í það, þá er það fyrir tilmæli allmargra embættisbræðra
ntinna, bæði hér á landi og í Vesturheimi".
Ekki er að undra, þótt menn verði fljótir til að spyrja, hvernig samn-
ing bókar þessarar hafi tekist fyrir höfundi, hvort hún sé líkleg til að afla
sér þeirrar hylli, að hún nái almennri útbreiðslu.
Svar mitt er það, að mikill fengur sé í þessari nýju barnalærdómsbók,
og að oft sé við lesturinn ástæða til að dást að því, hve höfundi hafi
tekist vel að halda trúarkjarnanum, þótt breytt sé um umbúðir.
Aherzla er þar lögð bæði á fagnaðarerindi ]esú um Quð og ríki hans,
og á fagnaðarerindið um Jesú sem frelsara heimsins. Þetta kemur þegar
fram í 1. kafla í þessari skilgreiningu á því, hvað kristin frú sé: „Kristin
trú er frú Jesú Krists. Hún er trúin, sem hann boðaði með kenningu
sinni og öllu Iífi sínu. Og hún er trú á hann sjálfan sem frelsara mann-
anna“.
Höfundur segir í formála, að hann hafi eftir megni sneitt hjá guð-
fræðilegum orðum og orðtækjum, og yfir höfuð gert sér far um að haga
efnisvali og meðferð efnisins þannig, að þaö sé sem bezt við hæfi ung-
linga, og hvetji jafnframt til sjálfstæðrar umhugsunar um þau efni, sem
um ræðir. Qet ég ekki betur séð en að höfundi hafi tekist þetta vel.
Eg hygg að þeim, sem þráð hafa nýja barnalærdómsbók, verði
„Kristin fræði" þessi engin vonbrigði, nema ef vera kynni einhverjum
öfgamönnum. Qeri ég ráð fyrir, að mörgum fari líkt og einum af þekt-
ustu mentamönnum vorum, sem eftir að hafa kynst bókinni lýsti því yfir,
að svona barnalærdómsbók vildi hann fúslega fá börnum sínum í hendur.
Hins vegar ætti engum að detta í hug að amast við því, að þeir noti
áfram gömlu kenslubækurnar, sem ánægðir eru með þær og engar breyt-
ingar hafa þráð.
„Kristin fræði" eru í 14 köflum og eru fyrirsagnir þeirra: 1. Kristin
trú. 2. Maðurinn. 3. Jesús Kristur. 4. Kenning Jesú. 5. Vilji Guðs.