Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.1998, Blaðsíða 84

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.1998, Blaðsíða 84
Einar Sigurbjörnsson staðar og vil halda í bæði orðin solum og sola. Ég hef lagt mig fram um að þýða yfir á eins hreina og skýra þýsku og mér er unnt. Oft hefur það komið fyrir að að vér höfum eytt hálfum mánuði, jafnvel þrem, fjórum vikum í að leita merkingar eins einasta orðs og jafnvel ekki fundið. Þegar vér þýddum Jobsbók gekk það oft þannig að meistari Filippus,10 Aurigallus* 11 og ég gátum ekki þýtt nema þrjár til fjórar línur á mörgum dögum. Nú liggur sú bók fyrir í þýðingu og hver og einn getur lesið hana og gagnrýnt. Það er hægt að hlaupa yfir þrjár, fjórar síður án þess nokkru sinni að reka sig á, heldur komast menn í gegnum textann erfiðleikalaust. Það er eins og að ganga yfir vel heflaða brú. Vér strituðum og svitnuðum við að ryðja burt heilmiklu grjóti og torfærum áður en það var hægt. Það er auðvelt að plægja þegar búið er að hreinsa akurinn. En að ryðja skóginn og uppræta stubb- ana er vinna sem enginn óskar sér. Það er ekki auðvelt að ávinna sér hylli heimsins Jafnvel Guð hlýtur engar þakkir fyrir sólina, hvað þá himin og jörð eða dauða sonar síns. Heimurinn er og verður í djöfuls nafni af því að hann vill ekki hafa það öðru vísi. En af hverju bætti hann orðinu solum eða sola (aðeins eða einni) inn í texta Rómverjabréfsins? Því svarar hann á þessa leið: Ég veit svo sannarlega að í Rómverjabréfinu 3 (28) er ekki að finna orðið (solum) hvorki í gríska né latneska textanum. Það þurftu pápistar ekki að kenna mér. Það er satt. Þessir fjórir bókstafir s o 1 a standa þama ekki. Svo stara þessir asnar á þá eins og naut á nývirki og neita að sjá að þessi er merking textans. Stafirnir tilheyra textanum ef merking hans á að vera ljós og skýr. Ég vildi nefnilega tala þýsku en ekki latínu eða grísku þar eð ég hafði tekið að mér að þýða yfir á þýsku. Samkvæmt eðli vorrar þýsku tungu er nauðsynlegt þegar talað er um tvo hluti þar sem öðrum er játað en hinum neitað að setja orðið solum (allein (þ.e. aðeins)) við hliðina á orðinu ekki eða enginn. Svo að dæmi sé tekið segjum vér: „Bóndinn kemur aðeins með korn en enga peninga." „Nei, svo sannarlega hef ég enga pen- inga núna, heldur aðeins korn.“ „Ég er aðeins búinn að borða en er ekki ennþá búinn að drekka.“ „Ertu aðeins búinn að skrifa en ekki lesa yfir?“ Um þetta mætti finna ótölulega fleiri dæmi úr daglegu máli. Þetta er þýsk orðnotkun enda þótt það sé ekki latnesk eða grísk málnotkun. Á þýskunni er orðið aðeins (allein) notað með orðunum ekki eða enginn til þess að merking þeirra orða geti orðið fyllri og skýrari. Ef ég segi: „Bóndinn kemur með korn og enga peninga“, þá hljóma orðin „enga peninga" ekki eins skýrt og greinilega og ef ég segi: „Bóndinn kemur aðeins með korn en enga peninga.“ Orðið aðeins hjálpar orðinu enginn svo að úr verður skýr og góð þýska. Orðnotkunin ræðst með öðrum orðum af því tungumáli sem þýtt er á. Og í beinu framhaldi koma orð Lúthers sem oft er vitnað til, þar sem hann telur 10 Filippus Melankton (1497-1560), prófessor í grísku í Wittenberg, nánasti samverkamaður Lúthers. 11 Matthías Aurigallus (1490-1543), prófessor í hebresku í Wittenberg, samverkamaður Lúthers við þýðingu Gamla testamentisins. 82
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226
Blaðsíða 227
Blaðsíða 228
Blaðsíða 229
Blaðsíða 230
Blaðsíða 231
Blaðsíða 232
Blaðsíða 233
Blaðsíða 234
Blaðsíða 235
Blaðsíða 236
Blaðsíða 237
Blaðsíða 238
Blaðsíða 239
Blaðsíða 240
Blaðsíða 241
Blaðsíða 242
Blaðsíða 243
Blaðsíða 244
Blaðsíða 245
Blaðsíða 246
Blaðsíða 247
Blaðsíða 248
Blaðsíða 249
Blaðsíða 250
Blaðsíða 251
Blaðsíða 252
Blaðsíða 253
Blaðsíða 254
Blaðsíða 255
Blaðsíða 256
Blaðsíða 257
Blaðsíða 258
Blaðsíða 259
Blaðsíða 260
Blaðsíða 261
Blaðsíða 262
Blaðsíða 263
Blaðsíða 264
Blaðsíða 265
Blaðsíða 266
Blaðsíða 267
Blaðsíða 268
Blaðsíða 269
Blaðsíða 270
Blaðsíða 271
Blaðsíða 272
Blaðsíða 273
Blaðsíða 274
Blaðsíða 275
Blaðsíða 276
Blaðsíða 277
Blaðsíða 278
Blaðsíða 279
Blaðsíða 280
Blaðsíða 281
Blaðsíða 282
Blaðsíða 283
Blaðsíða 284
Blaðsíða 285
Blaðsíða 286
Blaðsíða 287
Blaðsíða 288
Blaðsíða 289
Blaðsíða 290
Blaðsíða 291
Blaðsíða 292
Blaðsíða 293
Blaðsíða 294
Blaðsíða 295
Blaðsíða 296
Blaðsíða 297
Blaðsíða 298
Blaðsíða 299
Blaðsíða 300
Blaðsíða 301
Blaðsíða 302
Blaðsíða 303
Blaðsíða 304
Blaðsíða 305
Blaðsíða 306
Blaðsíða 307
Blaðsíða 308

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.