Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.1998, Side 101
Tveir sálmar Davíðs
3. Fyrir því hræðumst vér eigi, þótt jörðin haggist
og fjöllin bifist og steypist í skaut sjávarins.
4. Látum vötn hans (vötnin 1981) gnýja og freyða,
látum fjöllin gnötra fyrir æðigangi hans (hafsins 1981).
Drottinn hersveitanna er með oss,
Jakobs Guð vort vígi. Sela. (Drottinn - Sela. vantar í 1981)
5. Elfar-kvíslir gleðja Guðs borg,
heilagan bústað hins hæsta.
6. Guð er (býr 1981) í henni, eigi mun hún bifast;
Guð hjálpar henni, þegar birtir af degi.
7. Þjóðir gnúðu, ríki riðuðu,
hann þrumaði (raust hans þrumaði 1981), jörðin nötraði.
8. Drottinn hersveitanna er með oss,
Jakobs Guð vort vígi. Sela.
9. Komið, skoðið dáðir Drottins,
hversu hann framkvæmir furðuverk á jörðu;
10. hann stöðvar styrjaldir til endimarka jarðar,
brýtur bogann, slær af oddinn, brennir skjöldu í eldi.
Hættið (Verið kyrrir 1981) og viðurkennið, að eg er Guð,
hátt upphafinn meðal þjóðanna, hátt upphafinn á jörðu.
12. Drottinn hersveitanna er með oss,
Jakobs Guð vort vígi. Sela
121. sálmur
Eg hef augu mín til fjallanna:
Hvaðan kemur mér hjálp?
2. Hjálp mín kemur frá Drottni,
skapara himins og jarðar.
3. Hann mun eigi láta fót þinn skriðna;
vörður þinn blundar ekki.
4. Nei, hann blundar ekki og sefur ekki,
hann, vörður Israels.
5. Drottinn er vörður þinn,
Drottinn er skuggi þinn, þér til hægri handar
(Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar79SJ);
6. um daga mun sólarhitinn eigi vinna þér mein,
né heldur tunglið um nætur.
99