Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.09.1998, Page 300
Um höfunda
Framhaldsnám við New College í Edinborg í sálgæslu, nýjatestamentis-
fræðum og málvísindum 1973-74. Sóknarprestur í Stóra-Núpsprestakalli
1974-85. M.Th. í sálgæslu (Pastoral Care and Counseling) frá Luther-North-
western Theological Seminary í St. Paul í Bandaríkjunum 1984. Sjúkrahús-
prestur við Borgarspítalann (síðar Sjúkrahús Reykjavíkur) frá 1985 og stunda-
kennari (settur lektor vormisseri 1991) í sálgæslu við guðfræðideild Háskóla
íslands frá 1989.
Sigurbjörn Einarsson er fæddur 30. júní 1911 á Efri-Steinsmýri í Meðal-
landi. Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1931. Nam almenn trúar-
bagðavísindi, grísku og klassísk fornfræði í Uppsalaháskóla 1933-37. Cand.
theol. frá Háskóla íslands 1938. Framhaldsnám í nýjatestamentisfræðum í
Uppsölum vormisserið 1939 og í trúfræði við Cambridgeháskóla sumarið
1945. Námsför til Sviss, Danmerkur og Svíþjóðar veturinn 1947-48. Settur
sóknarprestur í Breiðabólsstaðarprestakalli 1938 og veitt prestakallið ári
síðar, veitt Hallgrímsprestakall í Reykjavík 1941. Dósent við guðfræðideild
Háskóla íslands 1944 og prófssor 1949. Biskup íslands 1959-81. Hefur sent
frá sér mikinn fjölda bóka og prédikanasafna, þar á meðal Kirkja Krists í ríki
Hitlers (1940), Trúarbrögð mannkyns (1954), Meðan þín náð (1956), Opin-
berun Jóhannesar (1957), Ljós yfir land. Hirðisbréf til presta og safnaða á
Islandi (1960), Helgar og hátíðir. Prédikanir (1976), Haustdreifar. Erindi,
ritgerðir, rœður (1992). Hefur einnig fengist mikið við þýðingar. Meðal
þýddra verka hans eru Játningar Agústínusar (1962).
Sigurjón Á. Eyjólfsson er fæddur 14. mars 1957 í Reykjavík. Stúdent frá
Menntaskólanum við Hamrahlíð 1978. Cand. theol. frá Háskóla íslands
haustið 1984. Doktorspróf 1991 frá Christian-Albrechts-Universitát með
ritgerðinni Rechtfertigung und Schöpfung in der Theologie Werner Elerts (útg.
1994). Vígður 1992 sem aðstoðarprestur í Bústaðarsókn. Héraðsprestur í
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra frá 1993. Stundakennari við guðfræðideild
Háskóla íslands frá 1991. Hefur í ritverkum sínum fjallað um margvísleg
siðfræðileg og trúfræðileg efni, ekki síst guðfræði Lúthers.
298