Hugur - 01.01.2013, Side 32

Hugur - 01.01.2013, Side 32
 Stefán Snævarr halda m.a. vegna þess að þeir hljóta að láta sig miklu varða hvernig líf þeirra í heild er. Því lifir máttugur metandi ekki í augnablikinu. Að láta sig varða líf sitt sem heild er að líta á líf sitt sem eitthvað sem hefur frásagnareiningu með tilheyrandi sögufléttu, segir Taylor. Líf þeirra hafi ákveðið samþættandi stef (e. thematic unity).31 Að skilja eigið líf sem sögu sé ekki óþarfa munaður fremur en það að sækjast eftir hinu góða (að vera maður sé að sækjast eftir gæðum). Við getum ekki vitað hver við erum nema við höfum einhverja hugmynd um hvernig við höfum orðið að þeim sem við erum og á hvaða leið við séum. Til að öðlast skilning á þessu þörfnumst við sjónarhorns frásögunnar. Við skiljum líf okkar sem sögur er halda áfram að gerast (e. unfolding stories). Þessar sögur ljá fortíð okkar merkingu og marka framtíðarstefnu okkar.32 Í ofanálag er sem líf okkar renni í farvegi, annað hvort í áttina að eða frá verðmætum sem okk- ur eru mikilvæg (e. strongly valued goods). Þessi hreyfing í siðarými (e. moral space) er stefið í lífshlaupi okkar, samanber orðasambandið „thematic unity“.33 Þannig er sjálfsemd hins máttuga metanda frásöguleg. Þótt veiki metandinn hafi ekki fullmótað frásögulegt sjálf þarf hann á frásögu- legum skilning að halda til að skilja atburði lífsins. Kramer telur t.d. að maður sem hann sér á flugvelli sé náungi sem skuldi honum peninga og gerir allt til að fá skuldina endurgreidda. Hann segir vini sínum George söguna um hvernig þessi maður hafi stungið af með féð endur fyrir löngu. Án slíkra frásagna gæti ekki Kramer lifað þótt hann hafi ekki samvisku og siðferðilegan metnað, gagnstætt máttugum metendum.34 Rétt eins og MacIntyre greinir Taylor ekki skarplega milli sjálfs og persónunn- ar, ekki heldur milli sögu og frásögu. Hugveran er vart nefnd, yfirleitt hunsar Taylor hið synkróníska við sjálfið. Í ofanálag setur hann samasemmerki milli sjálfs og lífshlaups. Mér sýnist að sagnsjálfsmenn geri sig almennt seka um þessa sömu villu og þeir MacIntyre og Taylor. Það gildir um jafn ólíka sagnssjálfssinna og fyrirbærafræðingana David Carr og Wilhelm Schapp, franska heimspekinginn Paul Ricœur, sálfræðinginn Jerome Bruner og hina rökgreiningarsinnuðu Maryu Schechtman.35 Sjálfið hefur bæði synkróníska og díakróníska þætti sem tengjast hver öðrum með ýmsum hætti. Svar vi! gagnr#ni á kenninguna um sagnsjálfi! Kenningin um sagnsjálfið er umdeild eins og annað sem til heimspeki telst. Mér er skylt að svara gagnrýni á þessa kenningu. Annars gæti ég ekki sagt björninn unninn, sagt mig hafa sannað að sjálfið sé af sagntoga spunnið. Mér sýnist að finna megi tvo meginþræði í gagnrýninni á sagnsjálfskenninguna,  Taylor : , neðanmálsgrein .  Abbey : –.  Taylor : .  Dæmið um Kramer er frá mér sjálfum komið, ég tel að það varpi ljósi á kenningar Taylors.  Bruner ; Carr ; Ricœur ; Schapp ; Schechtman . Hugur 2013-4.indd 32 23/01/2014 12:57:24
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.