Hugur - 01.01.2013, Page 146
H | . , | . –
Páll Skúlason
Vilji og túlkun
Huglei!ingar um heimspeki Pauls Ricœur
Í þessari grein hyggst ég tefla fram tilgátu um heimspeki Pauls Ricœur.1 Þessi
tilgáta snertir ákveðna spurningu um eðli heimspekinnar og þann ásetning sem
knýr hana áfram. Áður en ég reifa tilgátuna varpa ég fram spurningunni sem
ég hef í huga. Hvernig eigum við að skilja hið heimspekilega verkefni eins og
það birtist í verkum ólíkra heimspekinga í dag, til að mynda Ricœurs, Derrida,
Davidsons eða Habermas? Með öðrum orðum, hvað teljum við okkur öðlast með
lestri heimspekiverka nú til dags? Erum við að vonast eftir lausnum á vissum
vandamálum sem skilningsgáfa okkar glímir við, nýjum opinberunum á ákveðnum
hliðum raunveruleikans eða altækri og áreiðanlegri heimsmynd í krafti víðtæks
og yfir gripsmikils hugtakakerfis? Ef við spyrjum þessarar spurningar um heim-
speki Ricœurs mætti orða hana á þessa leið: Reynir Ricœur að leysa mikilvæg
vandamál sem fólk stendur frammi fyrir, aðstoðar hann okkur við að uppgötva
nýjar hliðar raunveruleikans eða fæst hann við að setja skipulega fram heim-
spekilega grundvallarsýn á heiminn?
Þessari spurningu er auðvelt að svara því segja má að Ricœur fáist vissulega við
allt af ofantöldu: Hann glímir við einstök vandamál af ólíku tagi, til dæmis hvern-
ig gera megi grein fyrir sköpunarmætti myndlíkingarinnar; hann beinir athygli
okkar að vissum duldum hliðum raunveruleikans, til dæmis hvernig mannlegur
raunveruleiki er mótaður af ákveðnum frásagnarformum og hann vefur hugtaka-
net sem gefur okkur heildarsýn yfir veruleikann og stöðu okkar í honum. Þetta
svar er vissulega rétt, allt þetta fæst Ricœur við í heimspeki sinni og meira til
því hann hefur einnig tekið þátt í ýmsum rökræðum innan hugvísindanna í því
skyni að skýra kenningaramma þeirra auk þess sem hann hefur reynt að útfæra
Greinin er unnin upp úr fyrirlestri sem fluttur var á málþingi um heimspeki Pauls Ricœur við
Árósaháskóla . mars og hét „Will and Interpretation: Ricœur’s way of doing philosophy“.
Hugur 2013-4.indd 146 23/01/2014 12:57:30