Hugur - 01.01.2013, Page 17
Heimspekin er afgangur vísindanna
málmpart inn í annan málmpart og snúa hendinni. Við sjáum einhvern opna dyr
með lykli! En það er engin meðvituð túlkun sem á sér stað. Þetta er allt ósjálfrátt.
Við túlkum athafnir fólks og stundum fela þessar athafnir í sér mælt mál.
E: "ú minntist á Searle. Samkvæmt honum er til eitthva! sem heitir „Bakgrunnurinn“
(og hann skrifar or!i! „Bakgrunnur“ me! stórum staf ). Bakgrunnurinn er $a! sem
allir ver!a a! gera rá! fyrir ef $eir ætla a! túlka gjör!ir annarra yfirleitt. Og hann
tók dæmi! um köttinn í geimnum einmitt til a! fá fólk til a! sjá a! $a! $arf bara
a! gera a!stæ!urnar svolíti! skrítnar til a! allar forsendurnar sem venjulega eru í
Bakgrunninum komi upp á yfirbor!i!. En nú erum vi! a! tala um lög og $ar ver!ur
$etta ef til vill flóknara. Getum vi! hugsa! okkur a! lögin séu skrifu! af einstaklingi
me! ætlanir og markmi!? Og hva!a fur!ulegu forsendur $urfum vi! a! gefa okkur til
a! geta gert $a!? Lögin geta veri! skrifu! af mörgum ólíkum manneskjum á ólíkum
tímum me! gjörólíkar og jafnvel andstæ!ar hugmyndir um tilgang og merkingu lag-
anna. Mér finnst reyndar ljóst a! vi! getum eigna! hópum ætlanir en eru ekki margir
sem andmæla $ví hér?
S: Þetta er skrítið mál. Fólk hættir nú að andmæla þessu um leið og því er bent á
að stundum kaupir eitt fyrirtæki annað fyrirtæki. Kaup eru þess eðlis að þau fela
í sér ætlanir. Ég get keypt nammimola. Og Apple gæti keypt Samsung. Hvað
merkir það? Merkir það að einstaklingarnir sem Apple samanstendur af gætu
keypt einstaklingana sem Samsung samanstendur af? Nei, þetta er ekki fólk að
kaupa fólk; þetta er fyrirtæki að kaupa fyrirtæki. Við lítum svo á að hlutafélög
séu saknæm og eigi að axla ábyrgð fyrir gjörðir sínar. Þetta eru allt ætlunarhugtök
(e. intentional notions). Við erum vön því að eigna fyrirtækjum sálfræðilega eig-
inleika, svo að segja. Hlutafélög geta gefið til góðgerðamála líkt og einstaklingar.
Í Bandaríkjunum styðja þau kosningabaráttu frambjóðenda. Fyrst við tölum með
þessum hætti getur varla verið vandamál að segja t.a.m. að Apple ætli sér að kaupa
Samsung, að Apple telji sig eiga næga peninga til að kaupa Samsung eða að Apple
viti innst inni að það geti ekki keypt Samsung.
E: Apple veit $a! í hjarta sínu!
S: Einmitt. Sama gildir um löggjafann. Hugsaðu það þannig að löggjafinn vinni
fyrir hönd okkar. Í einhverjum skilningi eru það okkar ætlanir, ætlanir alls sam-
félagsins sem koma þar við sögu. Við felum öðru fólki ábyrgðina á því að semja
lög og leyfum því að starfa fyrir okkar hönd. Vitanlega fylgir það ekki alltaf ósk-
um samfélagsins eins vel eftir og látið er að liggja í kosningabaráttunni.
E: "annig a! í fyrirmyndarsamfélagi semjum vi! sjálf í raun lögin?
S: Já. Þetta eru lögin okkar. Það eru bara einhverjir skammtímafulltrúar sem sjá
um að velja orðalagið. Við kjósum þá svo þessu sé komið í verk. Þetta er ekki
ólíkt því að borga bílstjóra fyrir að aka bílnum sínum. En jæja, ætlun hvers erum
við að tala um? Þetta er ætlun löggjafans. En hvað merkir það í raun og veru?
Hvernig finnum við hana? Ja, við finnum hana ekki, heldur skoðum við tungu-
málið og ímyndum okkur að löggjafinn sé einstaklingur. Eins og ég hugsa um
Hugur 2013-4.indd 17 23/01/2014 12:57:24