Hugur - 01.01.2013, Síða 63

Hugur - 01.01.2013, Síða 63
 List og l#!ræ!isskipan  Á undanförnum árum og áratugum hefur mikil umræða orðið um stjórnskip- un undir merki lýðræðis, bæði hér á landi og í nágrannaríkjunum. Eins og við komum til með að rekja nánar, byggir hún á stundum á því að gagnrýna lýðræðis- hugtakið og forsendur þess í heimspekilegu tilliti, en stundum á því að reyna að endurskilgreina forsendurnar til að byggja upp jákvæðar forsendur fyrir lýðræðis- skipan framtíðar. Stundum rekja menn forsendurnar til kenninga fyrri alda, til stjórnspekinga eins og Johns Locke og Jean-Jacques Rousseau, en einnig er tals- vert um að forsendurnar byggi á viðteknum arfsögnum um forsendur lýðræðis þar sem hugmyndafræðilegar rætur eru ekki endilega fyrir hendi, eins og við víkjum að síðar. Atli Harðarson dregur þetta vel fram í grein sinni „Lýðræði“ og heldur því fram að lýðræðið sé „ofhlaðið hugtak“ sem hafi misst mikið af notagildi sínu, bæði í heimspekilegri umræðu og á vettvangi stjórnmálanna. Þetta ofhlæði ræðst, að mati Atla, af því að í hugtakinu felist afar ólík og oft þverstæðukennd sjónarmið og að þegar menn ræði l#!ræ!i! sé því engin trygging fyrir því að þeir séu yf- irhöfuð að ræða sama hlutinn; það sé þess vegna erfitt að beita því í gagnrýnni og greinandi umræðu. Atli greinir merkingu hugtaksins í meginatriðum í tvennt og rekur jafnframt tvískipta merkingu hugtaksins til stjórnspekinga upplýsingarinn- ar. Annarsvegar sé félagslegt l#!ræ!i í anda Rousseaus, sem miðist við að tryggja jafnrétti þegnanna innan ríkisvaldsins; þessi samfélagsáhersla leggi jafnframt á þegnana skyldur og ábyrgð. Ólíkar þessari bræ!ralagshugmynd séu hugmyndir í anda Lockes um ríki! sem einungis hefur þann tilgang að veita þegnunum skjól og gæta réttar þeirra til einkalífs; þar sé einstaklingsfrelsið lykilatriði en áherslan á virkt jafnræði og samvinnu mun minni.20 Atli leggur til í lok greinar sinnar að til að byggja upp vitræna umræðu á grundvelli lýðræðis væri betra að þáttagreina áherslur hugtaksins; þannig mætti ræða þær ólíku hugsjónir sem búa þeim að baki án þess að eiga við eða reyna að skilgreina hugtakið sjálft: „Við höfum orð eins og réttarríki, frelsi og mannréttindi til að lýsa áherslum Locke og fylgismanna hans og við getum notað orðin jöfnu!ur, bræ!ralag og samsta!a til að lýsa hug- sjónum Rousseau.“21 Þessir þættir sem Atli tiltekur koma einnig við sögu á áhugaverðan hátt í um- Möllun Vilhjálms Árnasonar um lýðræðið á undanförnum árum. Hann skilgreinir samfélagið sem við lifum í sem l#!ræ!issamfélag á skýran hátt, en reynir jafnframt að gera betur grein fyrir virkni þess og a!fer!um við að ná markmiðum sínum, án tillits til þess hvort þau séu aukið frelsi og mannréttindi eða aukinn jöfn- uður og samstaða. Í greiningu Vilhjálms eru það ekki markmiðin sem stangast á, eins og Atli telur, heldur byggir lýðræðið að hans mati á ólíkum aðferðum við röksemdafærslu; það sem skiptir máli er hvernig rök eru notuð til að réttlæta lýðræðið sem skilvirkt og skynsamlegt stjórnskipulag. Í því samhengi greinir Vil- hjálmur annarsvegar verndarrök, sem snúast um að „slá varnagla gegn misbeitingu valds“,22 og hinsvegar $átttökukröfuna, sem „gengur út á að auka áhrif borgaranna  Atli Harðarson : –.  Sama rit: .  Vilhjálmur Árnason : . Hugur 2013-4.indd 63 23/01/2014 12:57:26
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.