Hugur - 01.01.2013, Page 81
Hver eru vi!horf grunnskólakennara til l#!ræ!is í skólastarfi?
ingar (um framkvæmd lýðræðis) og efnislegar kenningar (um inntak/hugsjónir
þess).39 Formlegu kenningarnar ganga út frá því að lýðræði snúist um samfélags-
leg og tæknileg form stjórnskipunar: þá er eingöngu er horft til stjórnskipunar,
meirihluta, kosningafyrirkomulags og tæknilegrar framkvæmdar lýðræðisins.
Þetta kallar Carr þunnt afbrigði af lýðræði.40 Efnislegar kenningar ganga út frá
því að lýðræði snúist ekki síst um persónuleg viðhorf, félagslegt réttlæti, meðvit-
und og virkni þegnanna og heildarsýn á manneskjuna. Þetta er hið þykka afbrigði
af lýðræðinu samkvæmt Carr.41 Röklega séð er sá kostur fyrir hendi að skilja
lýðræðið efnislegum skilningi en jafnframt samfélagslegum. Nefna mætti þann
kost „hálfþykkt“ lýðræði – og kemur hann frekar við sögu hér í lok greinarinnar.
Á sama tíma er ekki röklega tækt að halda til streitu stjórnskipunarhugmynd
um lýðræði og áherslu á einstaklingsbundið eðli þess – er sá kostur merktur sem
tómamengi í töflunni hér á eftir:
Tafla
1
–
Greining
á
lýðræðishugmyndum
Stjórnskipunarhugmynd
Formlegar kenningar
Siðferðishugmynd
Efnislegar kenningar
Samfélagsbundinn skilningur Þunnt
lýðræði Hálfþykkt
lýðræði
Einstaklingsbundinn
skilningur
Ø Þykkt
lýðræði
í
anda
Deweys
og
aðalnámskrár
Af hugmyndum Þorsteins Gylfasonar sem fram komu hér á undan má ráða að
í hversdagslegri umræðu á Íslandi sé lýðræði gjarnan skilið þunnum, formlegum
skilningi. Sá skilningur er hins vegar ekki í samræmi við þann skilning á lýðræði
sem fólginn er í hinni nýju aðalnámskrá. Síðarnefndi skilningurinn er meira í ætt
við hugmyndir Johns Dewey og fróðlegt er að kanna hvorum megin hryggjar
hugmyndir íslenskra kennara liggja; enda er sú spurning undirrót þessarar rann-
sóknar.
Rannsóknir á l#!ræ!i í skólastarfi
Rannsóknir á lýðræði í skólastarfi hafa sýnt fram á mikilvægi kennara í því að
efla gagnrýna umræðu og auka meðvitund um áhrif stjórnmála og hefðbundinna
viðhorfa til stétta, stöðu og kynþátta.42 Samkvæmt niðurstöðum úr Global Doing
Democracy rannsóknarverkefninu er besta leiðin til að efla samfélagsvitund er
öflug lýðræðismenntun í öllu skólakerfinu, að líta á kennarann sem pólitískan
áhrifavald og horfa má til möguleika skólanna til umbreytinga í samfélaginu.43
Güleç og Balçik benda á að þótt kennarar hafi jákvæðar hugmyndir um lýðræði
þurfi þeir að vera betur meðvitaðir um hlutverk sitt sem fyrirmyndir í lýð ræðis-
Ólafur Páll Jónsson .
Carr .
Sama rit.
Carr ; Zyngier . Sjá einnig upplýsingar um Global Doing Democracy Research Project:
http://doingdemocracy.ning.com.
Carr ; Freire ; Ross .
Hugur 2013-4.indd 81 23/01/2014 12:57:27