Hugur - 01.01.2013, Page 137
H | . , | . –
Páll Skúlason
Hlutverk heimspekingsins
í opinberu lífi
Ég vil byrja á því að greina frá tveimur persónulegum skoðunum mínum varð-
andi heimspeki.1 Ég lít svo á að heimspekingurinn sé hugsuður sem sækist eftir
hinu ómögulega; þekkingu eða skilningi sem á erindi við alla en er aldrei gefinn,
liggur aldrei algjörlega fyrir. Hver sem stundar heimspekilega yfirvegun af ein-
hverri alvöru fæst þannig við verkefni sem honum er fyrirmunað að leysa með
endanlegum hætti. Þetta er fyrri skoðunin.
Sú síðari er þessi: Við búum í mannheimi – veröld – þar sem þörfin á heim-
spekiiðkun er knýjandi, heimi sem einkennist af frumspekilegu tómi sem fólk
reynir látlaust að fylla upp í með alls kyns hugdettum eða skoðunum sem færa því
hvorki hamingju né leiðsögn í heimspekilegum málum.
Þetta kemur engum á óvart: Frá dögum Sókratesar og Platons hafa heimspek-
ingar verið á höttunum eftir frumspekilegri þekkingu sem skortir svo sárlega í
heimi okkar mannfólksins. En lífshættir mannsins og menningarlegar aðstæður
hans hafa verið með ólíkum hætti á ólíkum tímum í sögunni. Og á okkar tímum,
sem kenndir eru við alþjóðavæðingu og hnattvæðingu, eykst sífellt þörfin hjá fólki
fyrir að vita hverju það eigi að trúa um raunveruleikann og þann grundvöll sem
við stöndum á sem hugsandi, ábyrgar mannverur. Slíkar spurningar verða sér-
staklega áríðandi á krepputímum eins og nú.
Í þessu samhengi verður spurningin um hlutverk heimspekingsins á opinberum
vettvangi einnig meira áríðandi. Hvernig eigum við, sem iðkum heimspekilega
yfirvegun og greiningu hugtaka, að hugsa köllun okkar? Hver eru eða ættu að vera
verkefni heimspekinga á þeim torræðu tímum sem við lifum á? Hvernig eigum
við að ræða um köllun okkar, og hvernig á okkur að takast að svara henni?
Sjálfsagt er óþarfi að taka fram að sjálfur þykist ég ekki hafa nein ákveðin svör
við þessum spurningum. En ég tel nauðsynlegt að varpa þeim fram til umræðna.
Vitaskuld kunna slíkar umræður að vera eintómar vangaveltur og alls óvíst er
hvort þær hafi í för með sér nokkrar raunverulegar breytingar fyrir þróun heim-
Greinin er byggð á erindi sem flutt var á ensku á norrænu málþingi um heimspeki í Háskóla
Íslands . maí .
Hugur 2013-4.indd 137 23/01/2014 12:57:30