Hugur - 01.01.2013, Page 140

Hugur - 01.01.2013, Page 140
 Páll Skúlason Stöðugrar baráttu er þörf vilji maður móta samkvæmar hugsanir og merkingar- bæra lífshætti. Að baki hugarrónni býr óöryggi og óvissa um örlögin og það hvernig lífið muni að endingu verða – óvissa sem fyllir hugann angist og kvíða. Heimspekileg hugarró er sú list að sætta sig við vafann: að leyfa honum að örva okkur til frekari þroska og meðvitundar um þá vandasömu þætti raunveruleikans sem við höf- um ekki ennþá náð tökum á og munum jafnvel aldrei ná tökum á. Með þessar athugasemdir í huga má segja að heimspekingurinn sé sá sem iðkar gagnrýna samræðu með yfirvegun, hugarró og samkvæmni að leiðarljósi í leitinni að dýpri skilningi og þekkingu. Nú mun ég snúa mér að opinberri ímynd heimspekingsins og skoða hvernig hann kunni að svara köllun sinni með því að haga sér í samræmi við þessa opin- beru ímynd. Rökfærsla mín verður með eftirfarandi sniði: Ég mun setja fram þrjár fullyrðingar um hlutverk heimspekingsins og bregðast við þeim með gagn- rýnum hætti í anda almennrar skynsemi. Síðan mun ég ræða með hvaða hætti þessi gagnrýnu viðbrögð eru á misskilningi byggð og hvernig heimspeki getur í raun og veru veitt okkur leiðsögn á óvissri vegferð á vit hinstu raka tilveru okkar og orðið að liði við úrlausnir á raunverulegum vandamálum lífsins. Fullyrðingarnar eru þessar: () Heimspekingurinn leitast við að finna merkingu í heiminum, () hann leitast við að kenna fólki að meta raunveruleg verðmæti og () hann gagnrýnir eigin samtíma í ljósi hugsjóna hagnýtrar skynsemi. Óþarft er að taka fram að þessar fullyrðingar lýsa engan veginn öllu því sem heimspekingar fást við. Ég er þeirrar skoðunar að hver sem iðkar heimspeki verði að lýsa með eigin orðum hvað það er sem hann eða hún fæst við. Engu að síður segir sú mann- eskja sem fæst við heimspeki iðulega við sjálfa sig eitthvað á þessa leið: „Ég þarf sjálf(ur) að komast að því hvort það sé mögulegt að hugsa og tala um heiminn með skipulegum hætti.“ Hver og einn heimspekingur tekst á við þessa áskorun með sínum eigin aðferðum og leggur sjálfa(n) sig að veði í þeirri viðleitni. Sá heimspekingur sem ég ímynda mér í opinberu hlutverki sínu eða samkvæmt opinberu ímyndinni segir í fyrsta lagi við sjálfan sig: „Ég vil finna merkingu í heim- inum og mi!la skilningi mínum á heiminum til annarra.“ Hann segir: „Ég vil komast að mínum eigin niðurstöðum og ekki láta neinn annan segja mér hverju ég eigi að trúa. Ég vil komast að því, með eigin yfirvegun og í samræðu við aðra, hverju ég eigi að trúa um raunveruleikann, ef þá nokkru. Og þetta ætti að vera stærsta viðfangsefni mitt því þetta er það sem skiptir raunverulegu máli: Að komast að því hvað gerir heim okkar mannfólksins að því sem hann er, hvers vegna raunveruleikinn birtist okkur með þeim hætti sem hann gerir og af hverju ég er sú vera sem ég er eða mér finnst ég vera. Og ég ætla að lifa og aðhafast í samræmi við það sem ég kemst að. Kannski kemst ég að því að í heiminum séu tilteknir hlutir sem eru þess virði að trúað sé á þá, t.d. að til sé almáttugur Guð sem öllu stjórnar, eða að heimurinn sé gerður úr merkingarlausu efni sem hefur af tilviljun komið saman og myndað sólkerfi og meðvitaða heila. Og í kjölfarið kemst ég að ákveðnum niðurstöðum um veruleikann sem ég leitast við að kenna öðrum. Eða ég kemst að því að ég veit í raun ekkert um heiminn nema að hann er Hugur 2013-4.indd 140 23/01/2014 12:57:30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.