Hugur - 01.01.2013, Page 145
Hlutverk heimspekingsins í opinberu lífi
heimspekilega yfirvegun hefur ávallt leitt til gagnr#ni á ráðandi hugmyndafræði
sem reynir að útiloka alla gagnrýna hugsun. Á sama tíma hefur heimspeki ætíð
reynt að lýsa þeirri s#n á heiminn að hann sé staður þar sem verðmæti eins og
reisn, frelsi og jafnrétti geti orðið að veruleika. Og, það sem meira er, heimspekileg
yfirvegun þarfnast ætíð gagnr#ninnar samræ!u sem einbeitir sér að raunverulegum
aðstæðum í tæknilegum samfélögum okkar. Með skýra sýn á það hvernig hlut-
irnir eigi að vera þarf þessi samræða að vekja almenning til vitundar um þá van-
kanta og þau alvarlegu mistök sem sjá má í rekstri pólitískra og lagalegra stofnana
okkar. Að þessu sögðu ættum við að viðurkenna þá staðreynd að heimspekileg
samræða mun aldrei leysa pólitíska kappræðu með mælskubrögðum sínum og
valdatafli af hólmi.
Meginvillan er ætíð sú sama: Í stað þess að viðurkenna takmarkanir okkar og
skyldur gerum við hluti í flýti, ómeðvituð um hvað við erum í raun og veru að gera
og án þess að átta okkur á afleiðingum gjörða okkar. Í vissum skilningi æðum við
áfram með bundið fyrir augun, fávís um hvað muni að endingu verða. En þessi
blindni er engin afsökun fyrir þeim hroka og því ofbeldi sem svo oft einkennir
opinberar og pólitískar stofnanir okkar. Þvert á móti ætti hún að gera okkur þeim
mun meðvitaðri um mikilvægi þess að aðgát sé höfð í dómum okkar og ákvörð-
unum. Hér er enn og aftur um að ræða mikilvægt hlutverk fyrir heimspekinginn
á hinum opinbera vettvangi.
Þetta merkir ekki að heimspekileg yfirvegun, samkvæmni og hugarró eigi að
halda aftur af okkur í viðleitninni til að breyta heiminum eða kenna okkur að láta
almennar rökræður afskiptalausar. Þvert á móti á ég við að hlutverk okkar sem
heimspekinga sé fólgið í því að stíga fram á almennum vettvangi og mæta fávís-
inni, mótsögnunum og óörygginu sem einkenna raunverulegar aðstæður okkar.
Verkefni heimspekinnar er að berjast fyrir merkingarbæru lífi með skynsemina og
yfirvegunina að vopni svo við getum haldið áfram að lifa í þessum ofbeldisfulla
heimi, innblásin af draumnum um að uppgötva þá leyndardóma heimsins sem við
deilum með öllum öðrum verum.
Marteinn Sindri Jónsson $#ddi
Hugur 2013-4.indd 145 23/01/2014 12:57:30