Hugur - 01.01.2013, Page 28

Hugur - 01.01.2013, Page 28
 Stefán Snævarr sjálfið eða persónan geti verið annað og meira en burðarásar hugsana, tilfinninga, breytni o.s.frv. Eða hvað skyldi nú þetta þrennt vera að bauka þegar það hugsar ekki, hefur engar tilfinningar og gerir ekkert? Ekki er hægt að ákvarða skurðpunkt m-samsemda án frásagna, heldur ekki grindina. Það er heldur ekki hægt að ræða um persónu (og þar með grindina) nema að tala um ævi manns og þar með ævisögu. Eins og áður segir eru ekki skörp skil milli manns og athafna, sjálf okkar er sumpart summan af því sem við gerum eða vildum gera. Segja verður sögu þessara raunverulegu og mögulegu athafna ef hægt á að vera að skilja þær og þar með sjálfið. Írski heimspekingurinn Alasdair MacIntyre segir að málgjörðir (e. speech acts) séu ekki almennilega skiljanlegar nema menn þekki hið frásögulega samhengi sem þær gerast í. Hugsum okkur að við séum að bíða eftir strætisvagni og kona sem stendur við hlið okkar segi allt í einu: „Latneska heitið á villiönd er Histri- onicus histrionicus histrionicus.“ Auðvitað skiljum við orðanna hljóðan en eigum í erfiðleikum með að skilja tilganginn með málgjörðinni. Endurtaki konan þessa setningu með jöfnu millibili má ætla að hún sé klikkuð eða hafi sérkennilegt skopskyn. Skilja mætti málgjörðina ef við uppgötvuðum að hún telji mig vera einstakling sem spurði hana nýskeð hvað villönd kallaðist á latínu. Við myndum líka skilja hana ef í ljós kæmi að hún væri njósnari sem héldi að við værum með- njósnarar sínir. Setningin væri þá á dulmáli sem okkur væri ætlað að túlka. Í öllum tilvikunum er málgjörðin einungis skiljanleg ef við þekkjum hið frásögulega sam- hengi. Ég hygg að slíkt hið sama gildi um allar athafnir manna. Eða geta menn skilið þá athöfn mína að sparka í Sigga að yfirlögðu ráði nema þekkja forsöguna? Ég sparkaði kannski í hann vegna þess að ég gat ekki fyrirgefið honum að hann skyldi stinga undan mér í partíinu forðum. MacIntyre segir að sjálfsemd manna hafi frásagnarformgerð.25 Athafnir okkar séu atburðir í sögum, ekki síst ævisögu okkar. Ævisagan ljái athöfnunum sam- semd, geri þær að því sem þær eru. Jafnvel þótt við gætum efast um að sjálf okkar sé í raun og sanni eitt samhang- andi sjálf þá efast aðrir ekki um það. Menn geta t.d. gert okkur ábyrg fyrir því sem við gerðum fyrir áratug og þá þýðir lítið að segjast hafa verið önnur persóna þá. Menn gætu ekki gert okkur ábyrga fyrir fyrri afrekum nema þeir líti á okkur sem frásögulega heild. MacIntyre biður okkur um að hyggja að eftirfarandi: Við höldum að tiltekinn einstaklingur sé í einni lýsingu fangi í Château d’If og í annarri lýsingu greifinn af Monte-Cristo. Þessu getum við bara haldið fram svo mark sé á takandi að því tilskildu að við getum sagt söguna um það hvernig þessi maður geti verið einn og samur. Með þessum hætti er sjálfsemd manna af sama tagi og sjálfsemd persónu í skáldskap. Sú sjálfsemd skapast af heild frásögunnar, að breyttu breytanda gildir slíkt hið sama um sjálfsemd okkar. Sjálfið er því sértekning frá frásögu. Þess vegna getum við ekki talað um ævisögu nema gera ráð fyrir því að viðfang sögunnar sé  Ég „þýði“ boðskap MacIntyres á mitt mál, hann talar ekki um slíkar formgerðir. Hugur 2013-4.indd 28 23/01/2014 12:57:24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.