Hugur - 01.01.2013, Page 141

Hugur - 01.01.2013, Page 141
 Hlutverk heimspekingsins í opinberu lífi  til, óháður huga mínum, þrátt fyrir að ég geti ekki sannað það. Og í því tilfelli verð ég einhvers konar efahyggjumaður sem reynir að gera öðrum ljóst hve kjánalegir þeir eru þegar þeir trúa alls konar vitleysu um heiminn.“ Við skulum velta þessari ræðu opinbera heimspekingsins okkar örlítið fyrir okkur. Hann reynir að svara köllun sinni upp á eigin spýtur og vera sjálfum sér trúr í leitinni að hinstu rökum tilverunnar, rétt eins og Sókrates. Hann trúir á slíka vitneskju, hvort sem hann getur fundið hana eða ekki. Sannleikur efahyggju- mannsins er altækur, ekki síður en sannleikur þess sem telur sig hafa fundið mikil væg sannindi – og Sókrates, eins og við vitum öll, sveiflaðist á milli þessara andstæðu viðhorfa. Í báðum tilfellum er það sannleikurinn sem er að veði, sann- leikurinn um heiminn og spurningin um hvort eitthvað, og þá hvað, sé mögulega hægt að segja um hann. En dómur almennrar skynsemi er ótvíræður: Í báðum tilfellum mistekst heim- spekingnum að sannfæra okkur, venjulegt fólk, um að hann hafi uppgötvað eða muni nokkurn tímann uppgötva æðri sannleika um heiminn. Enginn heim- spekingur hefur uppgötvað sannleikann um heiminn eða sannleikann um eigin möguleika á því að uppgötva sannleikann. Sjálf tilraunin til að uppgötva sannleik- ann um heiminn og grundvöll eða undirstöðu þekkingar okkar er, þegar öllu er á botninn hvolft, líkt og að rogast með sólskin í fötu. Eða kannski er það jafnvel verra en það: einskær hégómi, uppgerð sem getur blekkt okkur sjálf ef við tökum hana alvarlega, eins og oft er raunin. Þessa uppgerð má jafnvel greina sem ákveð- inn sjúkdóm skynsamlegrar hugsunar sem rekja má til þess að ólíkum háttum hugsunarinnar er slegið saman svo úr verða orð og hugtök sem hafa enga skýra merkingu eða tilvísun og framleiða þannig dularfull fyrirbæri á borð við verund, anda, viljann til valds, sjálfsveru, viðfang, mismun, veru o.s.frv. – fyrirbæri sem eiga ekki heima í skynsamlegri samræðu, en eru engu að síður búin til af mönnum sem ekki eru taldir algjörlega viti sínu Mær.2 Niðurstaðan er óumflýjanleg. Tilraun heimspekingsins okkar, sem vill finna merkingu í heiminum, er einber hégómi. Almenn skynsemi segir okkur að við komumst ekki að neinum endanlegum niðurstöðum um hinstu rök tilveru okkar, og að allar tilraunir til þess séu líkastar barnaleikjum sem við á endanum vöxum upp úr, líkt og Kallíkles benti Sókratesi á fyrir margt löngu.3 Hvernig skal bregð- ast við þessum ósvífnu ályktunum almennrar skynsemi? Ég tel að það megi gera á þrjá vegu:  Þegar dóttir mín var tólf ára spurði hún mig: „Hvað er heimspeki?“ Þegar hún sá að ég hikaði, svaraði hún spurningu sinni með annarri spurningu: „Er það ekki bara leikur með óhlutstæð orð, orð sem vísa ekki til nokkurs sem við getum séð eða snert eða fundið lykt af?“ Hún var ekki að gagnrýna heldur aðeins að glöggva sig á hlutunum. Ég held mikið upp á svar hennar og lít á það sem eitt besta svarið sem ég hef fundið hingað til. Hún taldi athugasemdina ekki neikvæða og ég ekki heldur. En í daglegu lífi okkar, þegar við fáumst við hluti sem við getum skynjað og neglt niður sem örugg viðfangsefni hugsunar okkar, þá verður þessi athugasemd að öflugri gagnrýni: Heimspeki fæst ekki við hluti sem skipta máli í áþreifanlegu, daglegu lífi okkar, þar sem teknar eru ákvarðanir á hverju augnabliki er varða alvarleg hagnýt vandamál – jafnvel líf og dauða. Orð eins og sannleikur, réttlæti, frelsi – svo ekki sé minnst á forskilvitlegur eða frumspekilegur – kunna að hljóma innantóm, líkt og eintóm sjálfsblekking.  Sjá Gorgías B o.áfr. Hugur 2013-4.indd 141 23/01/2014 12:57:30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.