Hugur - 01.01.2013, Page 148

Hugur - 01.01.2013, Page 148
 Páll Skúlason sinni. Það má glöggt sjá á upphafskaflanum í fyrsta verki hans sem helgað er því sem hann kallar „heimspeki viljans“. Í verkinu, sem kom út árið  og hét Hi! sjálfrá!a og hi! ósjálfrá!a (Le volontaire et l ’involontaire), kynnti Ricœur fyrir lesendum sínum metnaðarfullt heimspekilegt verkefni sem ætlað var að geta af sér stórt hugtakakerfi sem fangað gæti allt það sem hægt er að segja með heim- spekilegum hætti um veröld viljans. Því má bæta við að Ricœur hefur í Mölmörg- um verkum og ritgerðum fylgt ætlunarverki sínu eftir jafnvel þótt hann kjósi iðulega sjálfur að lýsa heimspeki sinni sem safni af sundurleitum og ófullkomnum aðferðum.2 Til dæmis um þessa sundurleitni í rannsóknum hans mætti taka bókina Ég sjálfur sem annar (Soi-même comme un autre). Þetta verk er ekki sett fram sem kerfisbundin heild mögulegra aðferða til að skilja sjálfið með heimspekilegum hætti. Þess í stað fæst Ricœur við að greina einstök vandamál og leiðir hver grein- ing fyrir sig í ljós takmarkaða sýn á sjálfið líkt og ómögulegt væri að hugtaka sjálfsveruna með endanlegum hætti. En þrátt fyrir þetta tel ég að kerfisleg afstaða til þeirra helstu vandamála og meginhugtaka sem nauðsynleg eru svo hægt sé að hugsa altækt um raunveruleika sjálfsins sé til staðar í þessari bók rétt eins og í fyrsta verki Ricœurs um viljann. Ég mun koma aftur að þessu í lok greinarinnar. Til mótvægis við kerfisbundna heimspeki má nefna heimspeki sem er í grund- vallaratriðum ýmist opinberandi eða greinandi. Platon stundaði aðallega opinber- andi heimspeki: Honum er mest í mun að afhjúpa veruleikann með nýjum og óvæntum hætti og leiða okkur fyrir sjónir það sem raunverulega skiptir máli og af hverju við ættum að reyna að hugsa um sjálf okkur og heiminn eftir nýjum og róttækum leiðum. Vissulega styðst Platon við greiningar á ýmsum vandamálum til að hvetja lesendur sína til umhugsunar og auk þess Mallar hann stundum um hugmyndir sínar með kerfisbundnum hætti. En hvorki kerfið né greiningin er það sem skiptir máli í heimspeki hans þegar á hólminn er komið, heldur sú nýja og heillandi heimsmynd sem hann leitast við að miðla, heimsmynd þar sem hið fagra og hið góða í veruleikanum eru efst á baugi.3 Meðal heimspekinga á tuttugustu öld gera bæði Husserl og Heidegger ævintýra- legar tilraunir til að miðla nýrri sýn á heiminn sem frelsað geti lesendur þeirra frá þeirri náttúruhyggju og tvíhyggju sem yfirgnæfir upplifun þeirra af heiminum. Ég nefni þessa tvo í sömu andrá því sýn Heideggers á veruna-í-heiminum (þ. In-der- Welt-sein), sem hefur haft gífurleg áhrif á Möldamarga heimspekinga, verður best skilin sem róttæk endurskoðun á þeirri kenningu Husserls að heimurinn sé heild hugbundinnar merkingar sem forskilvitleg vitund myndar. Vissulega er að finna hjá bæði Husserl og Heidegger stórmerkar greiningar á ýmsum vandamálum er  Í æviágripi sínu, sem birtist í bók um heimspeki Ricœurs úr ritröðinni )e Library of Living Philosophers, lýsir Ricœur yfir óánægju sinni með uppkastið að viljaheimspeki sinni eins og ætl- unarverkinu er lýst í Hi! sjálfrá!a og hi! ósjálfrá!a. „Ég hef sagt að það hafi verið mjög ógætilegt af ungum heimspekingi að leggja slík drög að lífsverkinu. Ég sé eftir því í dag.“ (Ricœur [óútgefið]: . Frumtextann er að finna í Ricœur : ). – Þessi „ógætni“ hefur vitaskuld verið einstaklega mikilvæg og hvetjandi fyrir marga lesendur Ricœurs. Mér finnst hann ætti ekki að sjá eftir nokkru hvað hana varðar!  Ég tel að Nietzsche sé að þessu leyti merkasti arftaki Platons. Hugur 2013-4.indd 148 23/01/2014 12:57:30
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.