Hugur - 01.01.2013, Page 20

Hugur - 01.01.2013, Page 20
 Stefán Snævarr sá skapaði sjálfsemd sína með frásögum, riddarasögum.2 Don Kíkóti var sagn- kynja, vera má að við séum það öll. Í þessari grein hyggst ég reyna að svara spurningunni um hvort sjálfið sé af sögutoga spunnið. Ég geld jáyrði við henni og reyni að renna nýjum stoðum undir kenninguna um sagnsjálfið. Hva! er sjálf? Er $a! til? Sjálfið er á einhvern hátt þáttur í sérhverri persónu, jafnvel kjarni hennar. Hugsan- lega það sama og „egóið“, það sem við vísum til þegar við notum persónufornafnið „ég“ um okkur sjálf. Ekki er gefið að sjálfið sé stöðugt, það kann að líkjast ferli fremur en hlut. Ekki er heldur víst að sérhver einstaklingur hafi sama sjálf alla ævina. Þess utan kann sjálfið að vera kljúfanlegt, teygjanlegt og toganlegt. Óvíst er hvort skýr mörk séu milli einstakra sjálfa og annarra fyrirbæra, t.d. annarra sjálfa, annarra sálarþátta, samfélags eða líkama. „Hersing heiti ég, því vér erum margir“ segir óhreinn andi samkvæmt Mark- úsarguðspjallinu (:).3 Ekki skal útilokað að fleira en eitt sjálf kunni að leynast í tilteknum einstakling. Ekki skal heldur útiloka að tvö sjálf eða fleiri geti runnið saman í eitt sjálf. Eða að hópur manna hafi eitt sameiginlegt sjálf. En er sjálfið til? Efnishyggjumenn á borð við Daniel Dennett halda því fram að efnið sé það eina sem til sé, en að sjálfið sé ekki til. Það sé skálduð saga og sagan sé blekkingarvefur sem heilinn spinni. Sá vefur sé vopn lífverunnar til að komast af í lífsbaráttunni.4 En blekkingarvefur hlýtur að geta blekkt einhvern. Getur „einhver“ merkt eitt- hvað annað en „eitthvað sem er sjálf“? Er hægt að láta blekkjast nema maður hafi einhvers konar sjálf? Þess utan gæti efnishyggjan verið blekkingarvefur sem heili efnishyggjumanna spinnur vegna þess að spuninn auki líkurnar á því að gen þeirra klári sig í lífsbaráttunni. Póststrúktúralistar segja eins og Dennett að sjálfið sé blekkingarvefur. Hann sé spunninn af tungumálinu og félagslegu valdi.5 En að breyttu breytanda þarf eitthvað sem líkist sjálfi til að láta blekkjast af máli og valdi. Þess utan gæti tungu- málið og/eða valdið blekkt póststrúktúralistann til að trúa því að sjálfið sé blekk- ingarvefur. Af þessu má sjá að erfitt er að afsanna tilvist sjálfsins, ég mun gera ráð fyrir því að það sé til þar til annað sannara reynist. Telja má að tilvistarháttur sjálfsins líkist tilvistarhætti $ess sem hugsar, skynjar eða hefur tilfinningar o.s.frv. Hugsanir, skynjanir og tilfinningar eru vissulega til en geta ekki svifið í lausu lofti án einhvers sem hugsar eða hefur tilfinningar (nánar um það síðar). Kalla má það „hugveru“ (e. subject). En hugveran ein og sér getur ekki verið sjálfið sjálft því það sem er einvörðungu huglægt virðist ekki  „Sjálfsemd“ er þýðing á enska orðasambandinu „self-identity“.  Biblían :.  Dennett :–.  Til dæmis Foucault . Foucault telur að mál og vald séu samofin. Hugur 2013-4.indd 20 23/01/2014 12:57:24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.