Hugur - 01.01.2013, Page 27

Hugur - 01.01.2013, Page 27
 Arfar Don Kíkóta  Þriðja hugtakið kallast á ensku „narrativicity“ sem kalla mætti „segni“ á íslensku. Frásaga hefur mikið magn af segni, stærðfræðiformúla lítið eða ekkert segnimagn. Fyrirbæri sem hafa sagngerð eru gædd mikilli segni, hafi þau frásögu-formgerð í ofanálag eykst segnis-magnið fyrir vikið. Grindin, m-samsemdirnar og skurðpunktar þeirra hafa sagngerð að svo miklu leyti sem þær eru merkingarleg ferli. Þessi ferli hafa sömu formgerð og saga, þau heMast á ákveðnum tímapunkti, ná hátindi og þeim lýkur. Persónan og grind hennar eru hluti af æviferli sem hefur hafist á tilteknu augnabliki og lýkur fyrr eða síðar, nema náttúrulögmálin breytist allt í einu og menn verði eilífir. Að hafa m-samsemd á borð við „kona Guðmundar“ eða „forstjóri X“ er ástand sem hlýtur að hafa hafist á ákveðnum tímapunkti og ljúka fyrr eða síðar. Það að m-samsemdir mætast í skurðpunktum er augljóslega tímabundið ferli. Kona Guðmundar gæti skilið við hann og/eða misst forstjórastarfið. Hún gæti haldið starfinu og gifst Jóni, þá skarast m-samsemd hennar sem forstjóra við nýja m- samsemd, „kona Jóns“. Auk þess eru grindin, m-samsemdirnar og skurðpunktarnir gegnsýrðir merk- ingu. m-samsemdir eru spunnar af toga merkingar. Það er í krafti hugtaka, orða og tákna sem fyrirbæri eins og „eiginmaður“, „forstjóri“ eða „dóni“ verða til. Takið hugtök, orð og tákn burt og þessi fyrirbæri hverfa og þar með m-samsemdir. Persónan og þar af leiðandi grind hennar verða ekki greind skarplega frá sálar- lífi og sálarlíf er gegndreypa af merkingu. Það er gegnsýrt af hugsunum, orðum og draumum, belgfullum af táknum. Persónan verður heldur ekki greind skarplega frá raunverulegri eða mögulegri breytni. Maðurinn er sumpart það sem gerir eða vildi gera. Jean-Paul Sartre sagði sællar minningar „L’homme est ce qu’il se fait“ („Maðurinn er það sem hann gerir úr sér“).22 Svo langt vil ég ekki ganga en læt mér nægja að segja að maðurinn sé sumpart það sem hann gerir, gæti gert eða vildi gera. Biggi blauti fær m-samsemd- ina fyllibytta m.a. vegna þess sem hann gerir eða hefur tilhneigingu til að gera. A er þá og því aðeins athöfn að hún sé merkingarbær. Slái ég með hamri á hnéskel mína þá sparkar fóturinn en það er viðbragð, ekki athöfn. Sparki ég í mann meðvitað þá er sparkið athöfn, sú athöfn að ætla sér að meiða manninn. Án merkingar er athöfnin ekkert, A er aðeins athöfn í gefinni lýsingu, t.d. lýsingunni „spark til þess að valda skaða“.23 Hvernig er hægt að sannreyna tilvist tiltekinnar persónu (og þar með grindar- innar) nema með því að hyggja að orðum, athöfnum og hugsunum tiltekins ein- staklings? Við vitum hvað orð, athafnir, tilfinningar og hugsanir eru en varla hvað hreinræktuð sál eða persóna, ómenguð af þessu þrennu, kunni að vera. Vissulega verður eitthvað að hugsa eða hafa tilfinningar eða beita orðum. Hugsanir án hugs- uðar eru ekki til, tilfinning án þess sem hana finnur er ekki möguleg, athöfn án gerenda ekki heldur. Við köllum hugsuðinn, gerandann, tilfinningaveruna o.s.frv. „hugveruna“, „sjálfið“, „sálina“ eða „persónuna“.24 En vandséð er að hugveran,  Sartre : .  Hér má heyra bergmál frá heimspekingum á borð við Georg Henrik von Wright ().  Hér er „persóna“ notað í merkingunni „einstaklingur“ eða „vera sem er persóna“. Hugur 2013-4.indd 27 23/01/2014 12:57:24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.