Hugur - 01.01.2013, Page 48

Hugur - 01.01.2013, Page 48
 Geir Sigur!sson Greinarmunurinn á „hópsjálfi“ Kínverja (og raunar Asíubúa yfirleitt) og „ein- staklingssjálfi“ Vesturlandabúa er gömul en furðu lífseig klisja sem meðal ann- ars hefur legið til grundvallar umMöllun um hæfni austrænna og vestrænna menningar heima til að stuðla að skapandi virkni. UmMöllunin er almennt afar gildishlaðin og í ætt við þann yfirlætislega hroka sem Evrópumenn sýndu öðr- um menningarheildum í kjölfar vísinda-, tækni- og iðnbyltingarinnar í álfunni á nýöld. Almennt er dregið í efa að asísk menningargerð sé til þess fallin að kynda undir sköpun, meðal annars vegna tilhneigingar til hóphugsunar, hefðarhyggju og samfélagslegs stigveldis, en að henni sé það þó kleift að því marki sem hún tileinkar sér vestræna hugsun og vestrænar nálganir. Þannig er til dæmis algengt að fallast á að japönsk menning geti verið skapandi vegna þess hversu bandarísk áhrif hafi verið áberandi þar í landi. En hefðbundna menningin er það ekki og það mun vera helsta ástæða þess að þessum menningarheildum reyndist ókleift að standa jafnfætis Vesturveldunum í vísindalegu, tæknilegu og efnahagslegu til- liti. Hér verður ekki farið nánar í þessa vafasömu umræðu, heldur einungis vikið stuttlega að þeim margbrotnu heimspekilegu forsendum sem kínverska sjálfshug- takinu liggja til grundvallar og þeirri hugmynd um sköpun sem því tengist. Hin konfúsíaníska sjálfsmynd hvílir fyrst og fremst á samböndum og hlut- verkum sem jafnframt marka æskilegt þroskaferli einstaklingsins. Einan og sér í sjálfum sér er tæplega merkingarbært að segja hann vera nokkurn skapaðan hlut. En það er fyrir tilstilli þeirra hlutverka sem hann fæðist inn í, lærir smám saman að sinna og tekur síðan að sér sem hann skapar sjálfan sig. Þannig öðlast hann sjálf semd sína í rás lífsins með því að leggja rækt við sambönd sín og hlutverk. Einnig mætti orða það svo að sjálf hans sé einungis sá miðpunktur sem þau sam- bönd hverfast um. Þannig er hin konfúsíaníska áhersla á að við leggjum rækt við sjálf okkur ekki hvatning til sérhygginnar naflaskoðunar innan luktra dyra, heldur einmitt til samhygginnar ræktarsemi við sambönd okkar í hversdagslegu lífi sam- félagsins, að við verðum betri dætur, synir, feður, mæður, makar, vinir, nemendur, kollegar o.s.frv.24 Þar sem sambönd og hlutverk hvers og eins eru ávallt einstök í þeim skilningi að þau eru mynduð af $essum tiltekna einstaklingi í sambandi sínu við $etta tiltekna fólk er jafnframt lögð áhersla á að einstaklingurinn þurfi að fara sínar eigin persónulegu leiðir til að rækja sambönd sín, þó vissulega með hliðsjón af hefðbundnum siðum sem viðteknum viðmiðum. Í þessum skilningi er sjálfshugtak konfúsíanista vissulega tengt inn í hópinn en skilgreining þess sem „hópsjálfs“ er afar villandi einföldun þar sem krafa er gerð um stöðugt skapandi og einstaklingamiðaða viðleitni til að gera sem mest úr hvers kyns tengslum. Daoistar víkkuðu svo sjónarsviðið út yfir mannleg sambönd til ferla náttúrunnar í leit sinni að samstillingu við kringumstæður, samstillingu sem helgast af kringumstæðunum sjálfum en einnig af eiginleikum einstaklings- ins sjálfs um leið og hann gleymir sjálfi sínu, losar sig á vissan hátt við það til að ná beinni skynjun á náttúrulegu gangvirkinu í athöfnum sínum. Í báðum tilvikum er því um að ræða fyrirmyndir: konfúsíanistar taka sér til fyrirmyndar frásagnir af  Nánari lýsingu á hinu konfúsíaníska sjálfi má finna hjá Geir Sigurðssyni : einkum –. Hugur 2013-4.indd 48 23/01/2014 12:57:25
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.