Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 43
Skirnir] Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. 37
til þess að fara um haustið til suðlægari landa og afla sjer
þar frekari frama að minnsta kosti um næstu fimm ár.
Um helming þessara tólf ára hafði hann verið konrektor,
2. skólastjóri, við dómskólann í Hróarskeldu. En þó að
hann væri danskur embættismaður, notuðu Danir sér samt
þjóðerni hans, þegar að því kom, að veita honum sem
öðrum embættisbræðrum hans styrk af dönsku ríkisfé til
frekara háskólanáms erlendis, og synjuðu honum styrks
með þeim rökum, að slíkt fé mætti ekki veita íslendingi.
Aftur á móti varð honum ekki neitað um styrk af kapítula
skólans, þar sem hann var starfsmaður. Hann skrapp til
íslands með fyrsta árgjaldið, 60 rikisdali, til þess að selja
hér móðurleifð sína, svo að hann gæti sökkt sér áhyggju-
laust niður í fjölfræði aldarinnar. Markmið hans var þá
ekki lengur þetta, að afla sér víðtækari menntunar en nokk-
ur íslendingur hafði gert. Hann hafði þegar náð því tak-
marki. Markmið hans var, að standa á tindi evrópskrar
fræðimennsku. Átta árum áður, við fráfall Odds Einarsson-
ar, hefði hann feginn þegið biskupstign á fslandi. Nú freist-
aði hún hans ekki lengur. Vísindin höfðu tálnumið hann.
Þó að þjóð hans væri honum þá bráðókunnug, vissu
íslenzkir menntamenn um feril hans. En kunnugastur þvi
orði, sem af honum fór í Danmörku, var höfuðsmaður lands-
ins, Pros Mundt. Hann vildi gera meistara Brynjólf að bisk-
upi, og engan annan. Brynjólfur hafði lofað að fylgja líki
hins nýlátna biskups, Gísla Oddssonar, af Þingvelli í Skál-
holt. En fylgdin er ekki komin lengra en austur undir
Hrafnagjá, þegar hann verður þess vís, hvað menn ætla
sér með hann í Skálholti. Hann snýr hestinuin við og ríður
i Borgarfjörð. Að Stafholti er biskupskosningin komin á
undan honum. Brynjólfur ríður norður í land, siglir þaðan
og ritar hið alkunna latneska afsökunarbréf sitt til konungs,
þar sem hann biðst undan slíkri stöðu. En bænir hans tjá
ekki. Kristján fjórði skyldar hann næsta vor, að forlagi há-
skólaráðsins, til að taka biskupsvígslu.
Að dómi samtiðar hans og margra síðari alda fræði-
nianna er Brynjólfur Sveinsson þá hinn lærðasti maður,