Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 57
SkírnirJ Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttir. 51
þessi ungi stúdent hefur verið orðvar þá. En hafi hann
fleygt þar fram einhverju gamanyrði um þau Daða, er það
ekki í fyrsta sinn, sem hann hefur orðið að bæta fyrir gam-
ansemina. 16. marz 1653 varð hann t. d. að gera »afböt-
un« í Skálholti fyrir atvik, sem til bar í kirkju i Kálfafelli,
þar sem piltar gistu um haustið. Samferðastúlka þeirra
braut kaleik. En Marteinn barg stúlkunni og læknaði ka-
leikinn með því að lakka hann saman.
Þetta sama sumar, 1661, verður Daði aðstoðarprestur
föður síns í Hruna eftir Árna bróður sinn, og biskup vígir
hann 28. júlí.
Viku síðar, 5. ágúst, er biskup í Hruna með Halldóri
syni sínum o. fl. og hefur þar fyrirsögn að kaupmála við
síra Halldór um trúlofun Sigríðar dóttur hans og síra Þor-
leifs Kláussonar. Trúlofunin fer fram »í náveru og yfirsögn
heiðarlegs kennimanns S[íra] Daða Halldórssonar, í leyfi
og samþykki hans kæra föðurs« . . . og Daði ritar undir:
David prest Halldorsson.
13. ágúst leggur biskup upp í yfirreið sína um Borg-
arfjörð og Suðurnes og kemur heim aftur kvöldið 24. sept-
ember. Meðan biskup er í þeirri ferð, eða að minnsta kosti
i september (»um haustið«, segir aðeins í Fitjaannál, hdr.
Lbs.), deyr tengdamóðir hans í Skálholti. 5. okt. fer fram
skoðun erfingjanna á dánarbúi lögmannsekkju. Daði er þá
i Skálholti og vottar uppskriftina, ritar þá og jafnan síðan
hættu, að verða bendlaður við nokkra linu um þelta efni, meðan
biskup lifði. Til þess bendir iika visa, sem er að finna i syrpu
Magnúsar Jónssonar í Vigur, skólabróður Daða (Vigurbók, AM 148,
8vo, 20):
En ef kveðin eftir sé
einhver visan breiða:
á annan staf en R og D
eiga þau Ijóðin sneiða.
Visan stendur hér fyrirsagnarlaus og án nokkurrar skýringar
inni á milli kvæðis eftir Finn Sigurðsson (»Guð bið, góð að* —) og
alkunnra vísna eftir Jón Arason biskup. Ég tel vafalaust, að visunni
sé beint til Ragnheiðar og Daða; hún gerir ráð fyrir atburði, sem
alþjóð geti ráðið af stöfunum R og D (upphafsstöfum þeirra).
4*