Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 216
210
Um Vihjálm annan.
[Skirnir
Vilhjálmur fékk viðurnefnið »ferða-keisari« á hinum
fyrstu stjórnarárum sínum. Alltaf var hann á ferð og flugi
meðal höfuðstaða álfunnar, — heimsótti zarinn, ömmu sína
í London, Austurríkiskeisara, konungana í Sviþjóð, Dan-
mörku og Grikklandi, soldáninn í Miklagarði o. s frv. Ár-
ið 1894 var hann t. d. 199 daga á ferðalagi. Tilgangurinn
var auðvitað sá, að treysta forna vini og afla sér
nýrra, og keisarinn var alveg sannfærður um, að sér hefði
orðið mjög mikið ágengt í því efni, enda tjáði hann ríkis-
þinginu, að sér hefði tekizt að vekja traust allra ríkis-
stjórna á pólitík sinni. En þar skaut nú heldur en ekki
skökku við. Hitt mun sannara, að hann vakti almennt
vantraust, bæði vegna þess að hann biðlaði í allar áttir í
einu og þó ekki síður vegna hins, að alstaðar var hann
sítalandi og var ekki sú list lagin að stilla orðum i
hóf. Eitt sinn á þessum fyrstu árum hélt hann t. d. ræðu
fyrir móðurbróður sínum og fjandmanni, prinzinum af
Wales, og gat þá ekki stillt sig um að minnast á orust-
una við Waterloo, þar sem Bretar og Prússar sigruðu
Frakka. Sú ræða hafði slík áhrif á Frakka sem vænta
mátti, og vildi þó keisarinn eiga vingott við þá um þær
mundir — eins og hann vildi raunar oftast. Svo mikill
stuggur stóð vinum og vandamönnum af ofmælgi
keisarans, að þá er hann var í London 1891, heimtaði
Victoría amma hans, að hann sýndi sér fyrirfram ræðu þáf
sem hann ætlaði að halda í Guildhall. Var tölunni síðan
breytt og bylt, unz hún þótti frambærileg, enda er það
mál manna, að Vilhjálmur hafi aldrei haldið sæmilegri né
tign sinni samboðnari ræðu, heldur en við það tækifæri.
En amma hans hafði ekki hemil á tungu hans nema í
þetta eina sinn. Heima fyrir var hann ekki síður málóða
heldur en utanlands. Þar var hann líka sífellt á ferðinni,
afhjúpaði líkneski, vígði ný mannvirki, hélt herskoðaniu
heimsótti sambands-furstana, — og alltaf talaði hann seint
og snemma, steig jafnvel í stólinn og prédikaði á sjóferð-
um sínum. Mönnum hefir talizt svo til, að hann hafi hald-
ið ræðu 11. hvern dag hin fyrstu 17 stjórnarár sín. Þess