Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 77
Skírnir] Daði Halldórsson og Ragnheiður Brynjólfsdóttír. 71
biskup segist þá munu reyna að »róla vestur yfir Glámu
• . . ef þetta barn verður dregið svo langa ferð«. Sömuleið-
is leitar biskupsfrú samþykkis sinna bræðra. Um sumarið
fer biskup með drenginn vestur að Holti í Önundarfirði,
og þar er ættleiðslan undirskrifuð. í henni er það gert að
skilyrði, að Þórður megi aldrei fyr nje síðar láta neitt af
þessu fé renna inn hjá neinum í sinni föðurætt, og Daði
undirskrifar það í Hruna á undan vesturförinni. Næsta
sumar koma bræður biskupsfrúar að norðan, og ættleiðslu-
athöfnin fer nú fram i dómkirkjunni í Skálholti, þar sem
biskupshjónin arfleiða Þórð Daðason að aleigu sinni.
Af samningi, sem biskup gerir hér við mág sinn, Bene-
•dikt Halldórsson sýslumann, má sjá, að hann hefur hugsað
sér að setja Þórð í Hólaskóla, og fær mág sinn til að lofa
því fyrir hönd biskupsfrúar, dóttur sinnar, »að hann mætti
hennar skódrengur vera og hún vildi hann ásamt b[isku]p-
inum í sína vernd og varðveizlu taka, þá þar að kæmi,
með mögulegri meðgjöf á hverju ári«. En þrem vikum síð-
ar er hann horfinn frá því, því að í bréfinu, sem hann rit-
ar móður Gísla Vigfússonar, áskilur hann við eftirmann
sinn »fría skólavist fyrir Þórð Daðason Ragnheiðarson
(Daðason síðar strikað út) með uppeldi hjá sjálfum sér til
hans tuttugasta árs«.
Allur hugur biskups er um langan tima við ættleiðslu
Þórðar litla, og hann er ekki rólegur fyr en staðfesting
konungs er komin í Skálholt, haustið 1669.
Þessi dótturson biskups var að allra dómi frábærlega
gáfað og elskulegt barn. Fyrstu tvö árin eftir ættleiðsl-
una var hann hjá afa og ömmu sinni í Skálholti, en helm-
ing ársins næstu fjögur ár á Lundi í Lundarreykjadal hjá
presti, sem var annálaður barnakennari.
1670 dó biskupsfrú, og þrem árum síðar dó þessi síð-
aðsti afkomandi Brynjólfs Sveinssonar, Þórður Daðason, IIV2
árs gamall, 14. júlí 1673. Hann dó af berklaveiki í lungum,
eins og greinilega má sjá af sjúkdómslýsing biskups.
Hálfum mánuði fyrir andlát hans var biskup á Alþingi.
Þá gefur Björn Gíslason (sonur Gísla Magnússonar á Hlíð-