Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 149
Skirnir]
Nýskólar og nýskólahugmyndir.
143
anber orðið: »tossi«!). í stórum bæjaskólum mun það vera
venjan, að láta þau verstu í tossabekk og þar með er oft
drepinn síðasti neisti þeirra af keppni, starfslöngiin og trú
á sjálf sig og starfsgetu sína. Þó er engum meiri aftaka
og missa í slíku en þeim, sem örðugt eiga með nám. »Frá
þeim, sem ekki hefur, mun tekið verða jafnvel það, sem
hann hefur« eru grimmileg lög, ef gilda eiga í meðferð á
smælingjum.
Skólanum er ennfremur ætlað, að leggja hjá barninu
»grundvöll almennrar menntunar«, eins og það er orðað,
án tillits til þess, hvert verða skuli starf hans og viðfangs-
efni í lífinu. Einhvers slíks verður vitanlega að krefjast af
fullvita börnum. En því má þó ekki gleyma, að »almenn
menntun« er ekkert annað en það, sem algengast er að
læra. Þar sem hlutverk skólans er skilgreint á þessa leið,
er því trúað, að þetta, sem algengast sé að læra, sé sama
og það, sem alnauðsynlegast sé að nema og allir verði að
nema. Með tilliti til þessa eru viðfangsefnin ákveðin, skift
niður á námstímann, »lögð i dagsverk« að fornum sið.
Sumum nemendunum láta allar námsgreinarnar vel, sum-
um færri, öðrum ef til vill engin. Einkum er hætt við því
um börn, sem þannig er háttað, að vitsmunalíf þeirra allt,
uppistaða hugmyndanna, byggist á hreyfiskynjunum (mo-
torisk type). Sjónskynug (visuel) og heyrnarskynug (audi-
tiv) börn þola bókaskólana betur. Hinir verða tossar með
tilliti til sjálfra viðfangsefnanna. Um aðra megu þeirra er
ekki spurt í skólanum, annara hæfileika en þeirra, er nota
má til úrlausnar þessara ákveðnu viðfangsefna, er aldrei
krafizt í vinnubrögðum skólans. Og þeir lýjast af við Iöð-
ina, er fram í sækir. Ömurlegri flatneskju er varla unnt að
hugsa sér en andlegan svip skólabekks um 14 ára aldur,
þar sem viðurtækileikinn hefur verið þaulnýttur árum sam-
an á kostnað annara eiginda. í þeim andlega ham ganga
mörg börn út í lífið, út í eldraun kynþroska tímabilsins,
út á vegu sjálfforræðis og sjálfsbjargar. Þar þyrfti þó meiri
fararbeina en mola af þekkingu og hrafl af kunnáttu í
kristnum fræðum,