Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 175
Skírnir]
Úlfljótur.
169'
lögsögumannatal Ara og ekki skilið það svo sem Ari vildi
segja, að Úlfljótur hafi verið eiginlegur lögsögumaður, held-
ur einungis skýrt fyrir mönnum hin fyrstu lög. Þögn Ara
um lögsöguár Úlfljóts og upphaf Alþingis annars vegar og
skorðun hans á lögsögu-upphafi Hrafns Hængssonar — hann
miðar það bæði við dráp Játmundar Englakonungs og and-
lát Haralds hárfagra — hins vegar, verður varla skilin öðru-
visi en svo, að hvorttveggja hafi gerzt sama árið. Annars
kostar er líklegt að Ari hefði getið þess, hvenær Alþingi
hafi verið sett og hversu lengi Úlfljótur hefði haft lögsögu.
Úlfljótur hefur þá sennilega sagt upp hin fyrstu lög á fyrsta
allsherjarþinginu, en látið síðan kjósa lögsögumann sam-
kvæmt hinum nýju og nýsamþykktu lögum. Enn má á það
minna, að Sturlubók Landnámu (F. J., bls. 217) segir, að
Hrafn hafi sagt »fyrstr« upp lög á íslandi. Á hún við það,
að hann hafi verið fyrsti eiginlegi lögsögumaðurinn.
í fljótu bragði skoðað er ýmislegt, sem á móti þessu
mælir. Úlfljótur var auðvitað lang-færastur til þess að hafa
á hendi lögsögu, því að honum hlutu að vera lögin kunn-
ugust allra manna. Má og ætla, að menn hafi til einkis
annars manns borið fyllra traust i þessu efni en til hans.
Einnig er líklegt, að menn hefði viljað unna honum virð-
ingar af því að gegna þessu mikla trúnaðarstarfi framar
öllum eða flestum öðrum mönnum. En þegar betur er að
gáð, þá er ýmislegt, sem bendir til þess, að Úlfljótur muni
ekki hafa verið kosinn lögsögumaður. Hann hefur verið
orðinn maður gamall, er Alþingi var sett, kominn yfir sext-
ugt að minnsta kosti, og verið yfir hálf-sjötugt, ef hann
hefur verið sextugur maður, þegar hann sigldi til þess að
undirbúa Iagasetninguna. Það er því ekki ólíklegt, að hann
hafi verið farinn að þreytast, því að mikla vinnu og fyrir-
höfn hefur starf hans kostað hann, og viljað taka sér hvíld,
þegar þessu höfuðverki hans var Iokið. Auk þess átti hann
heima í einu afskekktasta héraði landsins. Alþingissókn það-
an er hin erfiðasta fyrir sakir vatna og öræfa, og því ekki
hentugt, að lögsögumaður, sem kominn átti að vera til Al-
þingis morguninn eftir þingsetningu ár hvert, ætti heima í.