Skírnir - 01.01.1929, Blaðsíða 225
Skírnir]
Um Vilhjálm annan.
219
verða rækt til hennar. En þrátt fyrir það gerði hann sig
beran að óhemjulegu hatri til Englands, meðan hún
var enn lífs. Hann úthúðaði ráðgjöfum ömmu sinn-
ar svo í bréfum til hennar, að hún varð einu sinni að
minna hann á, að slík endemi tíðkuðust ekki meðal þjóð-
höfðingja. Og þá er hún varð áttræð (1899) neyddist hún
til að biðjast undan heimsókn hans á afmælisdeginum. Það
var og alkunnugt, að keisarinn hlakkaði yfir óförum Eng-
lendinga í Búastriðinu, en þá kom honum þó til hugar upp
úr þurru, að koma sér í mjúkinn hjá ensku stjórninni með
því að semja hina nafntoguðu herfarar-áætlun, sem fyr
hefir verið minnzt á. Þó kastaði fyrst tólfunum um hatur
hans til Englands, er Játvarður móðurbróðir hans kom til
ríkis (1901). Þeir frændur voru svo ólikir sem þeir voru
skyldir Játvarður var kurteis maður og hljóðlyndur. Hafði
hann verið hinn mesti heimsmaður meðan hann var ríkis-
erfingi, en er hann settist að völdum kom það brátt í ljós,
að hann var einn hinn stjórnkænasti maður álfunnar. Þrátt
fyrir allan þann kala, sem hann bar til systursonar síns,
var það þó ætlun hans í upphafi að ná bandalagi við
Þýzkaland, ef þess væri nokkur kostur. En er þær tilraunir
urðu að engu, sneri hann og ráðgjafar hans huganum í
aðrar áttir. Árið 1904 jöfnuðu Frakkar og Englendingar öll
deilumál sin, og 1608 tókst Játvarði konungi að kom-
ast að viðlíka samningum við zarinn. Nokkrum árum
áður (1902) höfðu Englendingar gert bandalag við Jap-
ana. Svo að nú hafði þá Iánast að »umkringja« Þýzkaland
og Austurríki, því að allir vissu, að Ítalía mundi reynast
heldur lausbeizluð og ötrygg miðveldunum, ef til ófriðar
•drægi.
Ekki þarf þess að geta, að á þessum árum varð Vil-
hjálmur nálega trylltur af hatri til móðurbróður síns, en þó
mátti hann sjálfum sér mest um kenna, hve grátt hann
var leikinn. En þó verður að segja það Vilhjálmi til lofs,
að nú virðist hann hafa skilið um sinn, hvar komið var.
Hann er óvenjulega kyrrlátur og varkár á árunum 1909—
1914, enda höfðu þegnar Iians gefið honum rækilega