Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Side 36
30
Valdcmar Erlendsson:
| JÐONN
»En þú hefír nú alt af fengið það borgað, sem þú
hefir gert fyrir mig. Og, sko, þú hefir að miklu leyti
lifað á beitartollinum frá mér«.
»Það getur vel verið. En nú ætlum við Einsi minn
að girða Nesið af i vor eð kemur og hætta að taka
skepnur þínar til hagagöngu. f*ú hefir nóg land«.
»Jæja; ætlið þið að girða Nesið af? Við skulum
tala um það seinna. En vertu mér nú einlægur og
segðu mér eins og þú veizt bezt. Kemur ekki Símon
til þín alt af, þegar Elin er þar? Kom hann ekki
fyrra sunnudag?«
»Það er naumast, að þér er umhugað að vita þelta.
Og svo helvítis tortrygnin! Ég er búinn að segja þér
það, sem ég ætla mér, og þó þú gæfir mér alt þitt
konjak, þá veður þú ekki ofan í mig«, sagði Páll
og hló.
»Nú, sko; láttu ekki eins og þú sért vitlaus, maður.
Má ég ekki spyrja að því, sem mér líkar?«
»Nú; og má ég þá ekki svara eins og mér bezt
líkar?« sagði Páll og hló.
»Haltu kjafti!« sagði Guðmundur í bræði og sló
Pál með svipuólinni.
»Já, það er einmitt það, sem ég ætla að gera, Guð-
mundur minn. í*að þarf ekki að berja hann Palla
gamla til að þegja, þegar hann ætlar sér það«. Svn
hló bann og skríkti, sýnilega til að skaprauna Guð-
mundi.
»Pú hlærð eins og vitlaus maður. — Að hverjum
andskotanum ertu að hlæja? — Láttu nú ekki svona^
Segðu mér nú satt. Þú skalt ekki tapa á því. Það
máttu reiða þig á. Guðmundur í Tungu er vanur að
borga það, sem fyrir hann er gert. Það veizt þú
manna bezt«.
»En Guðmundur í Tungu hefir nú aldrei fengið
orð fyrir að borga meira en það naumasta, sem
hann kemst af með. Hana; komdu með konjakið«.