Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Page 120
114 Árni Porvaldsson: iiðunn
íslands og eru á það skráðar einkunnir þær, er liann
hefir hlotið í námsgreinum þeirrar prófdeildar. Að
því prófi loknu tekur hann fyrir aðra námsdeild, býr
sig undir próf í þeirri deild, annaðhvort við sama
skóla og áður eða við einhvern annan skóla (eða
jafnvel hjá privat-kennara), kemur svo aftur og tekur
próf hjá tilsvarandi prófdeild Háskólans, og svona
heldur hann áfram, unz hann hefir lokið prófi við
allar 6 prófdeildirnar. Þá fyrst fær hann fullkomið
stúdentsprófskirteini hjá Allsherjarprófnefnd Háskóla
íslands og er þá stúdent og tækur í Háskólann.
Ætla ég að meðal-nemandi ætli að geta lokið stú-
dentsprófi eftir 6 ára nám. Hafi einhver nemandi
ekki staðist próf upp úr einhverri námsdeildinni, eða
þyki honum prófeinkunnir sínar of lágar og vilji
hefja þær, sé honum leyfilegt að taka það próf upp
aftur, fyr eða síðar, og gildi þá einkunnir seinna
prófsins sem stúdentsprófseinkunn. — Lægsta meðal-
einkunn til að standast próf úr námsdeild sé 4 (séu
einkunnirnar 0 til 8 notaðar). Þó sé nemanda, er
fengið hefir lægri einkunn en 4 í einhverri einni
deild, veitt stúdentsprófskírteini, hafi hann náð ákveð-
inni (hárri) stigatölu í öllum öðrum greinum sam-
lögðum (samkvæmt reglum, er settar yrðu). Engum
leyfist þó að útskrifast úr íslenzkudeildinni eða aðal-
námsdeildinni með lægri meðaleinkunn en 4.
Sem sýnishorn set ég hér eitt af prófskírleinum
prófdeildanna eins og ég hugsa mér, að þau myndu
lita út:
Prófskirteini
fyrir II. prófdeild hinna lærðu skóla.
Námsgreinar: Enska, þýzka.
í dag hefir herra Jón Jónsson frá Hvoli Iokið prófi
við II. prófdeild hinna lærðu skóla og hlotið þessar
einkunnir: