Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Side 98
92
Ágúst H. Bjarnason:
I iðunn
eftir 15 ár c. kr. 2.500.000
. — 20 — _ — 4.500.000
— 25 — _ — 7.500.000
— 30 — - — 11.500.000
— 40 — _ — 23.880.000
— 50 — _ — 41.500.000
— 60 — - — 51.000.000
— 70 — _ — 53.750.000
— 84 — - — 54.000.000
Sjóður þessi yxi þannig feykilega ört,
skildu, að langlífi manna í landinu yrði líkt og á
tímabilinu 1901—1910, því að manntölin frá þeim
árum eru lögð til grundvallar fyrir útreikningnum,
og er óhætt að gera ráð fyrir því; en samkvæml því
yrði sjóðurinn eftir 84 ár orðinn minst 54 milj. kr. Þetta
er nú engin smáræðisupphæð og þó vitanlega alt of
lág, þar sem gera má ráð fyrir talsverðri fólksfjölgun
og þar af leiðandi miklu meiri iðgjöldum til sjóðsins;
en þá yxi sjóðurinn vitanlega hraðar og næmi að
lokum miklu hærri upphæð en hér er gert ráð fyrir.
En hvað er nú unnið við það, að oss safnaðist
svo mikið fé á tiltölulega svo stuttum tíma, einum
2—3 mannsöldrum? Og til hvers mundum vér geta
notað þessar liðugar 50 milj. króna?
Nú ættu Iandsmenn einu sinni að hugsa sig al-
varlega um, því að hér er eilt hið stórvægilegasta
velferðarmál þjóðarinnar á ferðinni. Og það ríður á,
að þjóðin þekki nú sinn vitjunartíma um það bil,
sem hún á að fara að ráða sér sjálf að öllu leyti.
Vér höfum nú nýverið, eða rétlara sagt stjórnin
fyrir vora hönd, tekið 8 milj. króna Ián hjá Dönum,
6 milj. kr. til þess að reka með landsverzlunina og 2
milj. til skipakaupa, auk þeirra 3—4 milj. kr., sem
áður voru fengnar. Vér skuldum því Dönum nú
milli 11 og 12 milj. kr. En hvar er tryggingin fyrir
því, að vér getum borgað þella eða sætt jafn-góðum