Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Side 69
IÐUNN|
Myndun íslands og ævi.
63
skila árnar svo ofan á ilatlendin og mynda þar af
honum eyrar; sumt hafa þær borið í sæ fram og
myndað af því grunn og eyrar fram af ósum sinum.
Þannig hafa ýmsir firðir smáfylzt af árframburði, t. d.
insti hluti Eyjafjarðar, sem fylzt hefir og orðið að
graslendi siðan í lanðnámstíð vegna framburðar úr
Eyjafjarðará.
4. Brimöldur hafsins hafa frá alda öðli verið sí-
starfandi við strendur landsins. Með lausagrjóti og
hnullungum, sem velzt hafa í brimrótinu, hafa þær
smám saman soríið af ströndunum og brotið niður
víðáttumiklar sneiðar af útjöðrum landsins. Til við-
bótar hefir svo hafið svelgt í sig framburðinn og
myndað af öllu þessu lög á mararbotni eða ilutt það
með ströndum fram og hlaðið því upp, þar sem var
hefir verið og þannig aukið við landið.
•5. Stöðuvötn hafa unnið svipað starf og hafið,
nema í margfalt smærri stil. Lítið hefir þó starfsemi
þeirra gætt hér á landi, nema ef vera skyldi á þeim
tímum, er surtarbrandslögin mynduðust.
6. Jöklarnir hafa verið býsna stórvirkir, einkum á
jökultimanum, þegar þeir náðu mestri útbreiðslu hér
á landi. Jöklarnir síga eða reka í hægðum sinum
ofan af fjöllunum undan hallanum og nudda og skafa
undirlag sitt með möl og hnullungum, sem fastir
sitja neðan í ísnum. Þeir hafa farið yfir hvern krók
og kima af landinu, brotið og malað nýpur og liamra,
jafnað og fágað hraunin, dýpkað og víkkað dali og
firði og rótað til öllu lauslegu á yfirborði landsins,
ekið því með sér og malað það smærra og smærra.
Af öllum þessum grjótruðningi hafa svo jöklarnir
myndað víðáttumiklar jökulurðir og jökulgarða til og
frá um landið. Sumu hafa þeir ekið alla leið á haf
út, og særinn síðan aðgreint það eftir stærð, flutt
það fíngerðasta út á djúpið og inyndað af því þykk
lög af jökulleir (smiðjumó) á mararbotni. Eru slík