Iðunn : nýr flokkur - 01.07.1918, Page 165
ÍÐUNN]
Fáein krækiber.
i.
Um Grim Thomsen
kvað Páll Melsted, er eftirmæli hans eftir Jónas Hall-
grímsson: »1*0 sem áður foldar iljóð« birtust nafnlans:
Ekki er þetta eftir Grím
— eða hvernig spyrðu! —
Pað er miklu mýkra rim
en meistaraljóðin stirðu.
II.
Um Skafta
kvað Páll Ólafsson, er hann var spurður frétta um
kapphlaup eitt á Austíiröinga-hátíð milli Skafta og Hall-
dórs á Klaustri, en peir voru báðir mestu beljakar:
Hvað er i fréttum? — Skafti skall!
— En skall nú ekki á grúfu.
Það var mikið feikna-fall,
— hann flatti’ út stærðar-púfu.
III.
Um Þorst. Erlingsson
orti Andrés sál. Björnsson einu sinni í gamni og hálf-
kæringi fyrir pað, að hann hafði haft skakt eftir honum
■visu, er hann hafði botnað:
Drotnum illur, prjózkur præll,
Porsteinn snilli-kjaftur,
botnum spillir, sagnasæll
sónar fylliraftur.
IV.
Héðinn.
Um kaldlyndan karl og önugan, Héðinn að nafni, orti
ung stúlka, H. J.:
Þána myndi pánkinn minn,
pótt hann væri freðinn,
fyndi’ eg ástarylinn pinn,
yndislegi Héðinn!