Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 10
8
Fr. le Sage de Fontenay
Skírnii*
Samkomulag dönsku og þýzku stjórnarinnar um form og
framkvædir hernámsins hefur sennilega verið gert fyrir
hádegi hernámsdaginn. Samkomulagið var í 13 greinum,
en mér hefur því miður aldrei borizt texti þess. Megin-
atriði þess eru samt, að því er ég bezt veit, ákveðin loforð
um það, að Þjóðverjar skipti sér ekki af innanlandsmál-
um Dana, að danskt land verði ekki notað til árása á Eng-
land, að dönskum her og dönskum hernaðartækjum verði
ekki beitt í stríðinu, að þýzki herinn fari burt úr Dan-
mörku að stríðinu loknu, og að sjálfstæði og fullveldi Dan-
merkur verði ekki skert á nokkurn hátt þegar stríðinu
lýkur.
Þessi inntaka Danmerkur í þýzkt heryfirráðasvæði
hafði það tafarlaust í för með sér, að hinn hernaðaraðil-
inn, Bretar og Frakkar, lýstu því yfir, að Danmörk væri
„óvina land“ (Enemy Territory). Hinsvegar lýstu þeir
því jafnframt yfir, að þeir líti á Dani sem vini sína. Af-
leiðing þessara ráðstafana varð sú, að allt viðskiptasam-
band rofnaði milli Danmerkur og allra þeirra landa, sem
voru á valdi Breta og Frakka, og tók fyrir frjálsar ferðir
danskra skipa á heimshöfunum.
Um skipin var svona ástatt: Lagt var hald á öll dönsk
skip í enskum og frönskum höfnum og dönsk skip á höf-
um úti voru hvött til þess að leita hafna í löndum banda-
manna. í yfirlýsingu frá ensku stjórninni var sagt, að öll
dönsk skip, sem þannig væru afhent í höfnum banda-
manna, yrðu látin laus í hendur Dana að loknu stríði, og
að greitt mundi verða fyrir afnot þeirra, ekki lægra verð
en greitt yrði fyrir brezk leiguskip. Bætur skyldu greidd-
ar fyrir þau skip, sem kynnu að farast í brezkri þjónustu.
Hinsvegar var þess krafizt af Breta hálfu, að þau dönsku
skip, sem þeir tækju við, skyldu sigla undir brezkum fána
og væru lögskráð í Englandi til bráðabirgða. Þessi ákvæði
og fyrirskipun danska verzlunarráðuneytisins um það, að
skipin skyldu leita í hafnir annarsstaðar en í bandamanna-
löndum, varð til þess, að fjöldi danskra skipa, sem lá í
hlutlausum höfnum, m. a. í Bandaríkjunum, neitaði að