Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 43
Skírnir
Ræða Periklesar
41
ast, og borg vor er aðdáunar verð einnig í þessum efnum
sem öðrum.
Vér unnum fegurð, er henni fylgir hóf, og vér unnum
speki, ef dugur ekki dvínar. Auð höfum vér fremur að
færi til framkvæmda en til oflætis, og ekki teljum vér van-
sæmd að kannast við fátækt sína, heldur fremur hitt, að
reyna ekki að forðast hana. Sömu mennirnir hafa áhuga
jafnt á stjórnmálum sem einkamálum, og aðrir, sem ýmsar
iðnir stunda, hafa þó vel vit á stjórnmálum. Vér Aþening-
ar einir teljum þann mann, er engan þátt tekur í stjórn-
málum, ekki aðeins hlutleysingja, heldur ónytjung, og
sjálfir dæmum vér um málin, eða íhugum þau skynsam-
lega og teljum ekki umræður framkvæmdunum til tjóns,.
heldur fremur hitt, að hafa ekki lært af umræðum áður
en gengið er til athafna. Vér erum öðrum fremri í því, að
vér erum hinir djörfustu til athafna, en hugleiðum manna
mest það, sem vér ætlum að ráðast í., Með hinum þróast
áræðið af fáfræði, hik af hugsun. En þá má að réttu telja
hugprúðasta, er glöggasta grein kunna á ógn og yndi, en
hopa þó hvergi í hættum. Vér erum fáum líkir að veglyndi.
Því að vér öflum oss ekki vina með því að þiggja góðverk,
heldur með því að veita þau. En sá, sem góðverk gerir, er
tryggari vinur, svo að hann varðveiti þakkarskuldina hjá
þeim, er hann gaf af góðvild sinni. Hinn, sem þökkina á
að gjalda, er daufari í vináttunni, því að hann veit, að
það, sem hann gerir, verður ekki vinarbragð, heldur end-
urgjald eitt. Og vér einir gerum öðrum gott án þess að
óttast afleiðingarnar, ekki í hagsmunaskyni, heldur af'
trausti á veglyndinu.
í stuttu máli, þá segi eg, að borg vor í heild sinni er
skóli fyrir Hellas, og mér virðist, að hver maður vor á
meðal mundi reynast sjálfbjarga við hin margvíslegustu
störf með hinum mesta yndisþokka og leikni. Og að þetta
er ekkert stundar-skrum, heldur raunöruggur sannleikur,
vottar sjálft veldi borgar vorrar, veldi, sem vér höfum
aflað með þessum þjóðháttum. Því að Aþenuborg ein sam-
tíðarríkja reynist, þegar til kastanna kemur, betur em