Skírnir - 01.01.1942, Blaðsíða 198
196
Geir Gígja
Skírnir
er og aðra staði, bæði í bænum og úthverfum hans. Sorp-
hreinsunin þarf að framkvæmast með reglusemi og ná-
kvæmni. Og það eru allt of fáir við það starf. Sorpílátin
mega ekki standa opin, eins og oft á sér stað, né sorpið að
fjúka út um húsagarðana, eins og títt er, svo að rotnandi
efni safnist í hvern krók og kima handa flugunum að verpa
í. Sorp og áburðarhauga á að byrgja, svo að þeir séu ekki
uppeldisstöðvar fyrir flugurnar. Útrýming húsflugnanna
byggist fyrst og fremst á því að fyrirbyggja timgun
þeirra, en fyrsta skrefið í þá átt er meiri þrifnaður. Yfir-
leitt þurfum við íslendingar að auka allt hreinlæti að mikl-
um mun, og ef við gerðum það, yrðum við meiri menning-
arþjóð en við erum.
Nokkrar ritgerðir um skaðleg skordýr.
Geir Gígja: Trjábukkarnir. Náttúrufr. IV. árg\, 1934, bls. 154.
---- Kakalakar. Náttúrufr. IV. árg., 1934, bls. 75.
-—-—• Kálmölurinn er skaðsemdar skordýr. Morg.bl. 3. okt. ’39.
---- Varist óþrifadýr, sem halda sig í húsakynnum manna.
Alþ.bl. 11. okt. 1939.
—--- Ertubjallan, skaðlegt skordýr í matvælum. Morgunbl.
10. febr. 1940.
----- Veggjalýsnar. Náttúrufr. X. árg., 1940, bls. 44.
---- Skaðsemdardýr í gróðurhúsum. Engispretta, sem hefir
verið óáreitt í sjö ár. Morgunbl. 24. ág. 1940.
---- Kakalakar breiðast út um landið. Náttúrufr. X. árg.,
1940, bls. 49.
---- Um húsfluguna. Náttúrufr. X. árg., 1940, bls. 129.
---- 740 skordýr fundin á íslandi. Vísir 21. júní 1941.
----- Húsið, sem veggjatítlan át. Vísir 25. sept. 1941.
---- Húsflugan er hættulegur smitberi. Vísir 25. júní 1941.
Ingólfur Daviðsson: Plöntusjúkdómar og varnir gegn þeim. Rit At-
vinnudeildarinnar — Búnaðardeild I, 1938.
flugurnar og aukið hreinlæti, er óhætt að fullyrða, að eitthvað
svipað má segja um aðra kaupstaði og kauptún á landinu og jafn-
vel um sum heimili í sveit.